Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, og þrettán annarra þingmanna. Lagt er til að þriggja manna rannsóknarnefnd skili Alþingi niðurstöðum og tillögum að úrbótum innan árs frá skipun.
Tillagan er á dagskrá þingfundar í dag. Hún hefur áður verið lögð fram á tveimur þingum án þess að ná fram að ganga.
Telja þrýsting hafa skapað hættu á óhlutlægni
Flutningsmenn segja mikinn þrýsting hafa verið á yfirvöld eftir hrunið að sækja tiltekna einstaklinga til saka. Við slíkar aðstæður sé hætta á að ákæruvaldið gæti ekki nægilega að hlutlægni.
Í greinargerðinni segir að orðræðan hafi oft verið sú að „markmið embættisins væri öðru fremur að sefa reiði almennings“.
Nefndin færi einnig yfir ákvarðanir um ákærur og niðurfellingu mála. Rannsóknin næði til annarra stofnana og einkaaðila sem komu að rannsóknum sérstaks saksóknara, meðal annars ríkissaksóknara, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins.
Boðaði rannsókn eftir umfjöllun um gagnaleka
Guðrún boðaði fyrst tillögu um slíka rannsókn í maí 2025, í kjölfar umfjöllunar um að trúnaðargögn úr rannsóknum sérstaks saksóknara hefðu komist í hendur einkaaðila. Hún sagði þá að skoða þyrfti störf ákæruvaldsins í heild og hvort réttindi borgaranna hefðu verið virt.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sagði í sömu umræðu að hún hefði þegar óskað eftir upplýsingum um vörslu, öryggi og eyðingu gagna. Hún vísaði jafnframt til þess að lögregla, Persónuvernd og nefnd um eftirlit með lögreglu hefðu málið til skoðunar.