Í fréttatímanum er einnig greint frá því að hálka hafi verið á vegum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og víða á Vesturlandi í morgun eftir kólnandi veður í nótt. Margir þurftu að grípa til sköffunnar áður en haldið var út í daginn í morgun. Vegagerðin hvetur ökumenn til varkárni. Að sögn yfirlögregluþjóns var þó lítið um umferðaróhöpp í morgun en nóg var hins vegar að gera á dekkjaverkstæðum.
Við höldum áfram að fjalla um svefnlyfja notkun Íslendinga. Lyfjafræðingur segir stóraukna notkun geðrofslyfs við svefnleysi óheillaþróun. Lyfið geti valdið alvarlegum aukaverkunum, jafnvel í litlum skömmtum eins og hækkun á blóðfitu og blóðsykri. Hann telur að fólk geti orðið háð lyfinu og hvetur lækna til að hætta að ávísa því við svefnleysi.
Boðuð einföldun á jafnlaunareglum hefur snúist upp í meiri vinnu og kostnað fyrir fyrirtæki, að mati Samtaka atvinnulífsins. Aðstoðarframkvæmdastjóri samtakanna segir fyrri vinnu þeirra ekki nýtast í nýju kerfi Jafnréttisstofu og vill að dómsmálaráðherra setji framkvæmdina á bið.
Þessi mál og fleiri í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf, og auk þess þéttur sportpakki. Umsjónarmaður og þulur er Telma L. Tómasson.