Mjög lítið er að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Ríkisstjórnin hefur aðeins komið með rúmlega þrjátíu af þeim tæplega 160 málum í þingið sem boðuð eru á þingmálaskrá. Fyrrverandi ráðherra gagnrýndi þetta harðlega á Alþingi og skoraði á forseta þingsins að beita sér.
Fá mál komin frá ríkisstjórninni
Alþingi var sett þriðjudaginn 8. september og síðan þá hafa verið haldnir 20 þingfundir. Kjördæmavika var um mánaðamótin og þá eru ekki þingfundir og í næstu viku er þing Norðurlandaráðs og þá eru almennt ekki þingfundir.
Tæplega 160 mál eru á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir þennan þingvetur og hefur verið mælt fyrir rúmlega þrjátíu af þeim. Þar á meðal eru fjárlögin og frumvörp sem þeim tengjast, húsaleigulög, oft kölluð leigubremsa, og bókun 35 en bæði það mál og húsaleigubremsa eru í nefnd.
Fyrir utan umræðu um þessi mál sem hér hafa verið nefnd hafa þingfundir verið stuttir, fá mál á dagskrá og í raun ekki mikið að frétta af þingstörfum.
Fyrrverandi ráðherra gagnrýnir verkleysi
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknar og fyrrverandi formaður flokksins og ráðherra, tók þetta upp á Alþingi í gær og ræddi þingfundina.
„Þeir hafa staðið frekar stutt; innan við tvo tíma, innan við þrjá tíma, innan við tvo tíma, innan við tvo tíma, innan við þrjá tíma, innan við klukkustund, innan við klukkustund, fyrir utan óundirbúna fyrirspurnatíma, störf þingsins og sérstakar umræður, þ.e. um löggjafarhlutann, enda eru á þessu löggjafarþingi aðeins 29 mál komin frá ríkisstjórninni og þar með talin öll fjárlögin,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson á Alþingi í gær.
Skorar á forseta Alþingis að beita sér
Sigurður Ingi skorar á Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra að setja fram frumvarp um lagareldi á dagskrá þingsins því nægur sé tími þingmanna til að fjalla um stór mál.
„Ég skora á hæstvirtan forseta og jafnvel atvinnuveganefnd, sem hefur eitt mál frá ríkisstjórninni til umfjöllunar í haust, að taka málið upp hér í þinginu ef framkvæmdarvaldið getur ekki komið með þetta hér inn,“ sagði Sigurður Ingi.