Janine Lochrenberg, 65 ára, lést eftir hákarlaárás þegar hún var í sjósundi með félögum sínum við vinsæla baðströnd í gærmorgun. Sundfélagarnir komu henni til hjálpar og náðu henni á land en ekki tókst að bjarga lífi hennar.
Árásin varð við Orient ströndina í borginni KuGompo, sem áður hét East London, á suðausturströnd Suður-Afríku. Tveimur ströndum hefur verið lokað í kjölfarið og yfirvöld vara fólk við að fara í sjóinn á svæðinu.
Gaf til kynna að hún væri í vanda
Samkvæmt frásögn sundfélaga hennar í viðtali við ríkisútvarpið SABC gaf Lochrenberg til kynna að hún væri í vanda. Þegar aðrir sundmenn komu að henni kom í ljós að hákarl hafði bitið hana.
Hún var með alvarlega áverka á læri og upphandlegg. Sundmennirnir komu henni á land og heilbrigðisstarfsmaður sem var með hópnum reyndi að bjarga henni, en hún var úrskurðuð látin á staðnum.
Fyrsta banvæna árásin í borginni frá 1997
Samkvæmt skrám sveitarfélagsins hafði ekki orðið banvæn hákarlaárás í borginni frá árinu 1997. Síðasta skráða hákarlaárásin þar varð árið 2023.