Góðgerðartreyjan er afrakstur samstarfs á milli Víkings og 66°Norður sem hófst í byrjun árs og nær nú hápunkti þessa viku þegar treyjan, sem er framleidd af Macron, fer í sölu.
„Eftir vel heppnaða góðgerðartreyju árið 2023 höfum við viljað flýta okkur hægt hvað varðar að leggja af stað í annað slíkt verkefni. Við höfum alltaf hugsað stórt í þessum efnum og samstarfsaðilarnir gerast ekki stærri í okkar huga á Íslandi, og þó víðar væri leitað, heldur en 66°Norður,“ segir Halldór Smári Sigurðsson, leikjahæsti leikmaður Víkings, sem hannaði treyjuna með Bergi Guðnasyni hjá 66°Norður.
Á treyjunni er frásögn af fyrsta Íslandsmeistaraliði Víkings og fyrstu keppnisferð félagsins árið 1921 í undirbúningi fyrir Íslandsmótið þegar liðið sigldi til Vestfjarða og keppti þar æfingaleiki við Ísfirðinga. Á svipuðum tíma og á sömu slóðum fæddist hugmyndin að því sem átti síðar eftir að verða 66°Norður.
Liturinn á treyjunni er innblásinn af Sepia-ljósmyndun sem var mikið notuð á þeim tíma sem myndin er tekin. Appelsínugulur hefur fylgt 66°Norður frá upphafi sem litur á fyrstu flík fyrirtækisins, sjóstakknum, en liturinn gegndi, og gegnir enn, því hlutverki að gera þá sýnilegri sem falla útbyrðis á sjó.
„Hjá 66°Norður þarf hver flík að hafa skýran tilgang, hvort sem hann felst í tæknilegum eiginleikum, vatnsheldni eða hugmyndafræði. Þá eru sögur sem við viljum segja jafnframt stór hluti af því sem við gerum hjá 66°Norður,“ segir Bergur Guðnason, hönnuður og stjórnandi samstarfa hjá 66°Norður.
„Í þessu verkefni var kafað í sögu Víkings og leitað leiða til að tengja hana við arfleið og sjónræna nálgun 66°Norður. Markmiðið var að skapa flík sem hefði ekki aðeins skýran tilgang, heldur segði einnig sögu og endurspeglaði tengsl fortíðar og nútíðar,“ bætir hann við.
Þar sem bæði grafíkin og ljósmyndin á treyjunni voru tæknilega flókin í útfærslu fóru hönnuðurnir í höfuðstöðvar Macron í Bologna á Ítalíu til að tryggja að útkoman yrði sem best.
Liðsmyndin frá 1921 leikur lykilhlutverk í hönnuninni. Í aftari röð frá vinstri eru: Helgi Eiríksson, Gunnar Bjarnason, Sverrir Forberg, Halldór Halldórsson, Óskar Norðmann, Sigurður Waage, Axel Andrésson (einn stofnenda Víkings) og Þórður Albertsson. Í fremri röð frá vinstri eru: Indriði Waage, Páll Andrésson, Haraldur Aspelund, Ágúst Jónsson og Einar Baldvin Guðmundsson.
Vefsala á treyjunni hefst á fimmtudagskvöldið 22. október næskomandi klukkan 23. Daginn eftir, föstudaginn 23. október, verður blásið til veislu í verslun 66°Norður í Faxafeni 17 klukkan 17 þar sem treyjan verður til sölu, en þó í enn takmarkaðra magni en í vefsölu. Auk þess verður tuttugu prósenta afsláttur í versluninni á öðrum vörum 66°Norður.