Svala Magnea Ásdísardóttir, fjölmiðlafræðingur sem búsett er í sænsku borginni Malmö, gagnrýnir Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfuss, harðlega vegna ummæla hans um innflytjendur og múslima.Hún segir orð valdamikilla einstaklinga geta kynt undir hatri og öfgahyggju og varar við því að slíkur málflutningur geti skapað jarðveg fyrir ofbeldi.Svala fjallar um málið í aðsendri grein á Vísi þar sem hún lýsir reynslu sinni af því að búa í Malmö, borg sem hefur á undanförnum árum verið mikið í umræðunni vegna glæpastarfsemi og vandamála tengdum aðlögun innflytjenda.
Íslensk kona í Malmö sendir Elliða tóninn – Varar við hættulegum afleiðingum