Fjórir voru drepnir í loftárásum Rússa á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Eldflaugum og drónum var beint að orkufyrirtækjum og innviðum. Að sögn yfirvalda í Úkraínu fór rafmagn af hjá minnst 600 þúsund manns vegna árása Rússa í nótt.
Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði að Rússar hefðu vísvitandi virt að vettugi það vopnahlé sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði lýst yfir vegna árása á orkuinnviði.
„Rússland hefur aldrei fyrr sýnt Bandaríkjunum jafn áberandi óvirðingu.“
Sergiy Beskrestnov, aðstoðarmaður Zelenskys, sagði í viðtali við AFP að Starlink-gervihnattakerfið sem Úkraínumenn hafa notað til að stýra loftvörnum hefði ekki virkað sem skyldi í nótt. Svo virtist sem virkni þess hefði verið takmörkuð. Hann sagði að þetta væri ekki tilviljun og tengdist því sem væri að gerast í stjórnmálum.
Trump hefur ítrekað gagnrýnt Zelensky og kennt honum um stríðið sem hófst með innrás Rússa. Trump sagði nýlega að skipta ætti um forseta.
Úkraínskur embættismaður sem AFP ræddi við en vildi ekki láta nafn sitt koma fram sagði að Bandaríkjamenn væru að hjálpa Rússum í stríðinu með því að takmarka virkni Starlink og vara Úkraínumenn ekki við árásum Rússa. Hann sagði tvö dæmi um að Bandaríkjamenn hefðu ekki látið vita af eldflaugaárásum Rússa á orkuinnviði í Úkraínu.