Úkraínskur dróni hæfði túrbínumiðstöð Zaporizhzhia-kjarnorkuversins í dag að sögn rússneska ríkiskjarnorkufyrirtækisins Rosatom. Rússar náðu verinu, því stærsta í Evrópu, á sitt vald snemma í innrásarstríðinu.
Fyrirtækið segir mikilvæga innviði versins á borð við kjarnakljúfa ekki hafa skemmst. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin lýsir miklum áhyggjum af árásinni og bendir á að slíkar atlögur geti valdið mikilli hættu á alvarlegu kjarnorkuslysi.
Stofnunin hefur farið fram á að eftirlitsmenn á hennar vegum fái að skoða og meta tjónið. Úkraínuher þvertekur fyrir að hafa gert árás á verið og stjórnvöld í Kyiv segja Rússa engar sönnur hafa fært fyrir ásökunum sínum og segja þær áróðursbragð.