Erlendur karlmaður sem flaug hingað með rúm 16 kíló af marijúana í lok júlí var í gær dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar. Fíkniefnin fundust í ferðatösku hans.
Ferð mannsins til Íslands gekk ekki áfallalaust fyrir sig. Hann kom hingað frá Frankfurt í Þýskalandi 30. júlí og tilkynnti skömmu eftir komuna að taskan væri týnd. Hún kom til landsins síðar sama dag. Maðurinn sótti hana þá í farangursþjónustu á flugvellinum. Ekki tókst betur til en svo að hann var handtekinn.
Hann er talinn hafa tekið smyglið að sér gegn greiðslu.
Í öðrum dómi í gær voru tveir dæmdir fyrir smygl á ellefu kílóum af marijúana. Hvor um sig fékk fimm mánaða dóm.