42 prósent landsmanna eru andvíg loðdýrarækt á Íslandi, samkvæmt skoðanakönnun sem Maskína gerði fyrir Samtök um dýravelferð. Þetta er þriðja könnunin sem gerð er fyrir samtökin frá því í desember og sýna þær allar mun meiri andstöðu en stuðning við loðdýrarækt.
20 prósent lýsa sig hlynnt loðdýrarækt í könnuninni en 38 prósent velja valkostinn í meðallagi.
Andstaðan við loðdýrarækt er mest meðal fólks undir fertugu, um og yfir 50 prósent þeirra eru andvíg henni. Stuðningur við loðdýrarækt hefur verið mestur meðal eldri aldurshópa en hann hefur farið minnkandi frá fyrstu könnuninni í lok síðasta árs. Þá sögðust um 35 prósent fimmtugra og eldri hlynnt loðdýraeldi en það hlutfall er nú komið í 21 til 25 prósent.
Sósíalistar, Vinstri græn og Samfylkingarfólk eru andvígust loðdýrarækt en Miðflokksmenn eru henni hlynntastir.