Tvö banaslys hafa orðið við fallhlífarstökk á undanförnum tveimur mánuðum í Danmörku. 37 ára danskur karlmaður lést í fallhlífarstökki í Holsterbro á dönsku eyjunni Læsø í gær en íslenskur karlmaður á tvítugsaldri lést í fallhlífarslysi á Fjóni í lok apríl. Danska ríkisútvarpið greinir frá.
Segir dauðsföll óalgeng
Banaslys við fallhlífarstökk eru óalgeng að sögn danska fallhlífarstökkssambandsins. Skrifstofustjóri sambandsins, Nikolaj Larsen, segir að á þeim 14 árum sem hann hafi starfað hjá sambandinu hafi orðið fjögur banaslys.
„Þetta er ekki algengt. Það eru um 20 þúsund til 25 þúsund stökk á ári hverju, þannig að það er tilviljun að tvö dauðsföll eigi sér stað með svo skömmu millibili,“ segir Larsen.
„Þetta er virkilega sorglegt.“
Var reyndur fallhlífarstökkvari
Maðurinn sem lést í gær var reyndur fallhlífarstökkvari að sögn Larsen en nákvæm tildrög slyssins eru enn til rannsóknar hjá lögreglu. Larsen segir allt benda til þess að maðurinn hafi lent í slysi við lendingu og lent á miklum hraða á ströndinni.
Hann segir slysið frábrugðið banaslysinu í apríl að því leyti að ungi Íslendingurinn hafi verið að stökkva í fyrsta sinn eftir námskeið. Það mál sé enn til rannsóknar en Larsen segir ljóst að tildrög slysanna tveggja hafi verið um margt ólík.