Rétt eftir klukkan eitt í dag var maður að skokka ásamt vinkonu sinni í kringum Reynisvatn í Grafarholti þegar þau komu auga á tvo Border Collie-hunda sem hlupu um lausir. Þegar þau reyndu að skokka hægt fram hjá öðrum hundinum urraði hann í áttina að þeim, stökk svo á hann og beit til blóðs í fótlegginn.
Eigandi hundanna tveggja var með þrjá hunda og maðurinn útskýrir að þau hafi kallað til hennar og beðið hana um að ná í hundana. Hún hafi þá sagst ekki geta tekið hundana, orðið dónaleg í svörum og einfaldlega ekki brugðist við af nægilegri festu að mati mannsins.
Stuttu seinna óðu hundarnir að konu sem var einnig á göngu við vatnið og bitu hana aftan á ökklann en margir voru á svæðinu í dag enda frábært veður til útivistar. Þau tvö sem voru bitin fóru á slysadeildina en maðurinn fékk bæði stífkrampasprautu og sýklalyf. Það liggur ekki fyrir hvort konan hafi sömuleiðis þurft slíka meðferð.
Þá réðust næst á annan hund og glefsuðu í hann en maðurinn sá ekki hversu illa fór fyrir hundinum.
Reyndu að flýja hundana
Border collie-hundar eru mjög oft þjálfaðir sem smalahundar en maðurinn, vinkona hans og konan sem var bitin áttuðu sig á því að þeir væru áfram líklegir til að bíta eða glefsa til þeirra ef hlaupið væri af svæðinu. Þau brugðu því á það ráð að bakka rólega frá hundunum en þeir brugðust þá við með því að gera sig líklega til að ráðast aftur á þau, tóku spretti hvað eftir annað í átt að þeim, geltu ítrekað og voru ógnandi.
Að sögn mannsins þurftu þau að hafa sig öll við og hrópa til að koma í veg fyrir að vera bitin aftur. Hundarnir hlupu því næst um svæðið og voru ógnandi áfram í um hálftíma en maðurinn hringdi í lögreglu sem bar að garði og lögreglukona sem virtist vön hundum náði að klófesta hundana.
Hann segir þau þrjú hafa verið tekin í skýrslutöku en veit ekki hvernig fór með hundana og eiganda þeirra.
Varst þú eða þekkir þú einhvern sem var við Reynisvatn í dag þegar hundarnir gengu lausir? Sendu okkur fréttaskot undir nafni eða nafnleynd á ritstjorn@visir.is.
Varst þú eða þekkir þú einhvern sem var við Reynisvatn í dag þegar hundarnir gengu lausir? Sendu okkur fréttaskot undir nafni eða nafnleynd á ritstjorn@visir.is.