Tryggvi Gíslason fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri lést 8. júní eftir nokkurra vikna sjúkrahúsvist á Landakotsspítala, 88 ára að aldri. Eftirlifandi eiginkona hans er Margrét Eggertdóttir barnakennari og áttu þau sex börn.
Aðrir afkomendur þeirra eru 25 talsins. Tryggvi var skipaður skólameistari MA árið 1972 og lét af því embætti árið 2003. Eftir að hann brautskráðist sem mag. art. í norrænum fræðum frá Háskóla Íslands 1968 starfaði hann sem lektor við háskólann í Björgvin í Noregi uns hann tók við stöðu skólameistara.
Áður vann hann lengi á fréttastofu útvarps. Árin 1986-1990 gegndi Tryggvi störfum hjá Norrænu ráðherranefndinni í Kaupmannahöfn. Hann var um árabil kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn Akureyrar.
Tryggvi var frumkvöðull að umbótum í skóla- og menningarmálum, lagði áherslu á að efla Akureyri sem skólabæ og átti þátt í undirbúningi að stofnun Verkmennta- og Háskólans þar. Hann var alltaf virkur í félagsmálum.
Tryggvi skrifaði fjölda ritverka og greina, einkum um málvísindi og menningu. Meðal helstu verka Tryggva má nefna Sögu Menntaskólans á Akureyri, þar sem hann var meðritstjóri og einn höfunda, og Orð í tíma töluð.
Tryggvi hélt mikið upp á þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson og ófáar bækur, erindi og pistlar liggja eftir Tryggva um Jónas. Tryggvi átti frumkvæði að stofnun og starfsemi menningarfélags um Jónas að Hrauni í Öxnadal.