Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa fengið tryggingar frá ráðamönnum í Íran um að þeir hyggðust hvorki þróa né kaupa kjarnorkuvopn eftir að fréttir bárust af því að hann hefði sent þeim mjög ákveðna tillögu að friðarsamningi.
„Þeir samþykktu þetta og það fannst mér mjög áhugavert,“ sagði Trump í samtali í þætti Lauru dóttur hans á Fox-fréttastöðinni. Bæði New York Times og vefritið Axios greina frá friðartillögum Trumps án þess að tíunda í hverju breytingarnar felast.
Trump hefur lagt ríka áherslu á að Íranar samþykki að hætta tilraunum sem gætu leitt af sér smíði kjarnorkuvopna. Íranskir ráðamenn hafa til þessa krafist þess að látið verði af frystingu tólf milljarða dala fjármunaeigna og að Líbanon verði hluti samkomulagsins áður en farið verði að ræða kjarnorkuáætlunina
Ísraelsmenn halda áfram hörðum árásum á Hezbollah-hreyfinguna í Líbanon og hafa ruðst norður fyrir Litani-fljótið að hjarta bækistöðva hennar. Allar tilraunir til að breyta samkomulaginu gætu dregið formleg endalok stríðsins í Mið-Austurlöndum á langinn og þar með opnun siglingarleiðarinnar um Hormússund.
Bandarískir ráðamenn, þeirra á meðal Trump og stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth, hafa síðustu daga sagst meira en reiðubúnir fyrir átök við Írana.
Forsetinn ýjaði að því sama í viðtalinu við Lauru Trump og sagði ekkert liggja á. „Hægt og bítandi fáum við það sem við ætlum okkur og ef það tekst ekki þá ljúkum við þessu bara með fulltingi hersins,“ sagði Trump.