Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í dag að hann hefði samþykkt að viðræður við Írana myndu hefjast á ný. Óvissa er þó um hvers eðlis þær viðræður verða.
Engar viðræður um frið í Íran hafa átt sér stað frá því seinni hluta síðasta mánaðar þegar fulltrúar ríkjanna ræddu saman í Sviss eftir undirskrift viljayfirlýsingar milli ríkjanna. Trump kallaði Írana óþverra og klikkaða á leiðtogafundi NATO í vikunni og lýsti því jafnframt yfir að vopnahléinu væri lokið. Síðan þá hafa árásir átt sér stað á báða bóga, þó ekki í dag.
Trump sagði í færslu á Truth Social í dag að Íranar hefðu beðið um að viðræður héldu áfram en setur þó orðið viðræður í gæsalappir. „Við höfum samþykkt það en Bandaríkin hafa sagt þeim það umbúðalaust að vopnahléinu sé LOKIÐ,“ sagði Trump jafnframt í færslunni.
Sendinefnd í Íran
Sendinefnd frá Katar var í Íran í dag til að reyna að koma á viðræðum um frið. Þetta þykir áhugavert í ljósi þess að Íranar réðust á bandarískar herstöðvar í landinu fyrr í vikunni og uppskáru fordæmingu yfirvalda í Katar. Þá hefur Badr Abdelatty utanríkisráðherra Egyptalands einnig óskað eftir því að viðræður hefjist á ný.
Það eina sem hefur heyrst frá Íran er að yfirmaður öryggissveita landsins sagði í yfirlýsingu að árásum á innviði yrði svarað. Þeirri yfirlýsingu virtist einkum hafa verið beint að Ísraelsmönnum, sem segjast tilbúnir í frekari árásir ef þeir telja þörf á.
Ekkert liggur fyrir um hvenær þessar viðræður sem búið er að fallast á hefjast, né hvers eðlis þær verða.