Trump hótar hörðum árásum á Íran í kvöld

Trump hótar hörðum árásum á Íran í kvöld

Trump hótar hörðum árásum á Íran í kvöld

Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, brást í dag við ítrekuðum yfirlýsingum Trumps um að Bandaríkin eigi að ráða yfir Grænlandi. „Ég tók eftir yfirlýsingum forsetans í gær. Þær staðfesta það sem við höfum allan tímann vitað: Það er, að ef Trump mætti ráða öllu þá yrði Grænland hluti af Bandaríkjunum á morgun. En Trump ræður ekki öllu,“ sagði Rasmussen.

Þá sagði utanríkisráðherrann að Grænlendingar hefðu ekki nein áform um að verða hluti af Bandaríkjunum.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur verið yfirlýsingaglaður á leiðtogafundi NATO í dag. Nú rétt í þessu hótaði hann Írönum hörðum árásum í kvöld. Fyrr í dag lýsti hann því yfir að viljayfirlýsing um vopnahlé væri runnin út í sandinn.

„Við ætlum að gera harðar árásir á þá í kvöld. Þeir brjóta samkomulagið á hverjum degi,“ sagði Trump stuttu áður en hann hóf fund með Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, sem einnig er á leiðtogafundinum í Ankara.

Öll aðildarríki Atlantshafsbandalagsins ítrekuðu í ályktun óhagganlega samstöðu um 5. grein sáttmála bandalagsins. Hún kveður á um að árás á eitt ríki jafngildi árás á öll. Bandaríkin eru meðal ríkja sem eiga aðild að ályktuninni.

„Við, leiðtogar aðildarríkja NATO, höfum komið saman í Ankara til að ítreka óhagganlega samstöðu um sameiginlegar varnir sem 5. greinin kveður á um,“ segir í ályktuninni.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að það hafi verið „mikil ást“ í fundarherbergi leiðtoga NATO í dag. Fundinum lauk fyrir skömmu og forsetinn ávarpaði blaðamenn á eftir.

Atlantshafsbandalagið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að leiðtogarnir hafi komið saman í Ankara til að staðfesta órofa skuldbindingu sína við sameiginlegar varnir bandalagsríkjanna.

Alþjóðasiglingamálastofnunin varaði í morgun við stigmögnun átaka við Hormússund. Síðustu þrjár vikur, eftir undirritun viljayfirlýsingar um vopnahlé, hefur skipaumferð aukist jafnt og þétt um sundið. Hún var þó ekki orðin jafn mikil og fyrir stríðið.

Alþjóðasiglingamálastofnunin tilkynnti í morgun að um 6.000 manns væru í áhöfnum fjölda skipa við Hormússund. Yfirmaður stofnunarinnar hefur lýst því hversu hættulegt og taugatrekkjandi það er fyrir áhafnirnar að vera fastar þarna á meðan stríð virðist mögulega vera að brjótast út á ný.

Trump notaði ýmis niðrandi orð um stjórnvöld í Íran þegar hann var spurður að því í morgun hvort samkomulag við Íran um vopnahlé stæði enn. Hann kvaðst líta sem svo á að úti væri um vopnahléð. „Ég vil ekki eiga lengur við þá. Þeir eru úrhrök. Veistu hvað úrhrak er? Þeir eru úrhrök. Þeir eru veikir. Þeir eru veikir og illgjarnir, og ofbeldisfullir,“ sagði Trump á leiðtogafundi NATO í Ankara í morgun.

Þá sagði Trump að það væri undir Írönum komið hvort viðræður yrðu hafnar á ný. Þá sakaði Trump þá um að hafa mistúlkað það sem samið hafi verið um. Trump sagði að samið hafi verið um að Íranar ættu engin kjarnorkuvopn en þeir hafi svo haldið því fram að slíkt hafi aldrei verið rætt.

Þá hefur Trump á leiðtogafundinum ítrekað gremju sína í garð aðildarríkjanna fyrir að hafa ekki veitt Bandaríkjunum liðsinni í stríðinu við Íran.

Spánverjar virðast vera alveg rólegir þrátt fyrir yfirlýsingar Bandaríkjaforseta í morgun um að hann hafi skipað fjármálaráðherra Bandaríkjanna að slíta á öll viðskiptatengsl milli ríkjanna.

Í yfirlýsingu frá skrifstofu forsætisráðherra Spánar, Pedro Sánchez, segir að ríkin eigi í mjög góðum menningarlegum og efnahagslegum tengslum við Bandaríkin. Spánverjar hafi ekki í hyggju að breyta neinu þar um.

Trump hefur sakað Spánverja um að slæmur bandamaður innan NATO. Stjórnvöld á Spáni hafa ekki leyft Bandaríkjaher að hafa viðkomu á landinu með herþotur á leið að gera árásir á Íran.

Árásir Bandaríkjanna og Írans sem hafa staðið síðan í gær flækja enn frekar tilraunir til að semja um frið, sagði Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, í færslu á X í morgun.

„Árásir Írans á Bahrein og Kúveit eru óásættanlegar,“ sagði hún. Utanríkisráðherrar ESB ætla að ræða við utanríkisráðherra Persaflóaríkjanna á mánudag um leiðir til að tryggja örugga skipaumferð um Hormússund.

Sundið hefur verið meira og minna lokað síðustu mánuði eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran og réðu æðstaklerk landsins af dögum. Íranar svöruðu með árásum á nágrannaríki þar sem Bandaríkin eru með herstöðvar. Á friðartímum eru um 20 prósent af allri olíu heimsins flutt um sundið.

Forseti Sýrlands, Ahmed al-Sharaa, kom til Ankara í morgun. Síðar í dag á hann fund með Bandaríkjaforseta, sem er í borginni ásamt öðrum leiðtogum aðildarríkja NATO og leiðtogum nokkurra Persaflóaríkja. Sýrlandsforseti kemur til Tyrklands í boði forseta landsins, Recep Tayyip Erdogan.

„Vegna Erdogans eigum við í mjög góðum samskiptum við nýjan leiðtoga Sýrlands,“ sagði Trump við fréttamenn í gær. „Hann hefur staðið sig frábærlega og haldið landinu saman. Samband okkar við hann er mjög gott.“

Sharaa kom í heimsókn til Washington á síðasta ári að ræða fjárhagsstuðning við land sitt.

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í morgun að vopnahléi við Íran væri lokið. Hann sagði samninganefndir ríkjanna geta rætt saman en að þær sói tíma sínum með viðræðunum.

„Hvað mig varðar er þessu lokið. Það er tímasóun að eiga við þá, þeir eru lygarar,“ sagði Trump á blaðamannafundi í aðdraganda fundar Atlantshafsbandalagsríkja í Ankara í Tyrklandi.

Bandaríkin gerðu loftárásir á Íran í gærkvöld, að sögn í hefndarskyni fyrir árás á flutningaskip við Hormússund. Íranar svöruðu fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein.

Bandaríkjaforseti hefur sagt á leiðtogafundinum í Ankara að afstaða NATO til Grænlands sé „mikið vandamál“. Aðildarríkin hafa alfarið mótmælt yfirlýsingum Trumps um að Bandaríkin ættu að taka yfir Grænland.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir útspil Trumps ekki hafa komið á óvart. „Ég hef verið alveg skýr með að Grænland er auðvitað hluti af Danmörku og Grænland tilheyrir grænlenska fólkinu, og við verðum að virða það fullveldi sem þar er. Þetta er að sumu leyti kannski ekki óvænt útspil; þessi tónn hefur komið frá Bandaríkjaforseta áður. En línurnar eru alveg skýrar þegar kemur að bandamönnum, hann veit það vel, og ég bind miklar vonir við þá vinnu sem núna er í gangi milli Danmerkur og Bandaríkjanna,“ sagði Kristrún við RÚV áður en hún gekk inn á leiðtogafundinn.

Bandaríkjaforseti hótaði því í morgun að Bandaríkin hætti öllum viðskiptum við Spán. Ástæðan er gremja hans yfir því að Spánverjar verji ekki meiru til öryggis- og varnarmála og að þeir hafi ekki veitt Bandaríkjaher meira liðsinni í árásum þeirra á Íran.

Þegar Trump mætti á leiðtogafund NATO í Ankara í Tyrklandi í morgun lýsti hann þessu yfir.

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði í morgun um yfir fimm prósent eftir yfirlýsingar Donalds Trumps, Bandaríkjaforseta, um að vopnahlé við Íran væri runnið út í sandinn. Bandaríkin hafa gert harðar árásir á Íran eftir að Íranar gerðu árásir á skip á Hormússundi.

Ég heiti Dagný Hulda Erlendsdóttir og segi frá helstu vendingum í alþjóðamálum í þessari fréttavakt í dag.

#hótar #hörðum #trump #árásum #íran

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-07-08-trump-hotar-hordum-arasum-a-iran-i-kvold-480811

📰 Aðrar fréttir

Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 0
Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins - Vísir
Viðræður milli ríkjanna strönduðu fyrir síðustu helgi og ætla Bandaríkjamenn því að beita Kanada umfangsmiklum tollum. Ráðamenn í Kanada lýstu því yfi...
Mikil­vægt að fatlaðir geti tekið þátt í um­ræðunni - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 0
Mikil­vægt að fatlaðir geti tekið þátt í um­ræðunni - Vísir
Félagið Átak bauð fulltrúum já- og nei-hreyfinga að mæta á fund þar sem þau voru spurð spjörunum úr en í brennidepli voru málefni fólks með þroskahaml...
Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ - Vísir
Tónlistarmaðurinn og áhrifavaldurinn Aron Kristinn, sem var áður meðlimur hljómsveitarinnar ClubDub en rekur nú fataverslun og kemur að öðrum tónlista...
Segir neikvætt svar á laugardaginn veikja stöðu ríkisstjórnarinnar
📅 26.08.2026 👁️ 0
Segir neikvætt svar á laugardaginn veikja stöðu ríkisstjórnarinnar
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, telur að ef svar þjóðarinnar á laugardaginn er neikvætt veiki það stöðu ríkisstjórnarinnar. Eins og fle...
Haft sam­band við þá bændur sem búa næst gilinu - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Haft sam­band við þá bændur sem búa næst gilinu - Vísir
Greint var frá því á mánudag, þann 24. ágúst, að manns væri leitað sem hefði fallið út í Jöklu við Stuðlagil en hann fannst látinn á áttunda tímanum u...
Kristrún: „Sækjum góðan samning fyrir Ísland og sjáum svo til — við getum það vel — og við höfum gert þetta áður“
📅 26.08.2026 👁️ 1
Kristrún: „Sækjum góðan samning fyrir Ísland og sjáum svo til — við getum það vel — og við höfum gert þetta áður“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði samkomuna Þjóðin ræður í Austurbæjarbíói í kvöld. Sagði Kristrún að Íslendingar væru vitur þjóð sem bæ...
Eiginkonan setti upp myndavélar og þá kom í ljós hvað eiginmaðurinn hafði gert við heimilishundinn
📅 26.08.2026 👁️ 1
Eiginkonan setti upp myndavélar og þá kom í ljós hvað eiginmaðurinn hafði gert við heimilishundinn
Bandarískur lögmaður á sextugsaldri gæti átt yfir sér þungan dóm eftir að hann var gómaður við að hafa mök við heimilishundinn. Eiginkona hans hafði s...
Já-hliðin: Bóndi vill losna við krónuna og telur íslenskan landbúnað ráða við aðild
📅 26.08.2026 👁️ 1
Já-hliðin: Bóndi vill losna við krónuna og telur íslenskan landbúnað ráða við aðild
Logi Sigurðsson, sauðfjárbóndi og umhverfisfulltrúi í Borgarbyggð, ætlar að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag. Hann segir að Íslendingar...
Frost, hiti, þurrkur og reykur breyta víni ársins
📅 26.08.2026 👁️ 1
Frost, hiti, þurrkur og reykur breyta víni ársins
Haustverk franskra vínbænda eru að tína vínber. Þannig hefur það verið lengi, en ekki í ár. Vínberjatínsla hófst óvenju snemma víða í Frakklandi í sum...
Burnham calls summit of first ministers of Wales, Scotland and Northern Ireland
📅 26.08.2026 👁️ 1
Burnham calls summit of first ministers of Wales, Scotland and Northern Ireland
The announcement comes as Burnham holds his first official visit to Wales since becoming prime minster.
Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu - Vísir
Fjöldi erlendra miðla hefur fjallað um andlátin en í umfjöllun norska miðilsins NRK segir að heilbrigðisyfirvöld í Frankfurt hafi greint frá því að tv...
BBC visits hospital in Kathmandu as families wait for news
📅 26.08.2026 👁️ 0
BBC visits hospital in Kathmandu as families wait for news
More than 150 people have been killed after a massive flash flood on the Nepal-Tibet border, as hundreds still missing.
5.200 fermetra nýbygging við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi
📅 26.08.2026 👁️ 1
5.200 fermetra nýbygging við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi
Húsnæði stofnunarinnar á Selfossi er löngu orðið sprungið og miklir erfiðleikar eru við að finna eitthvað laust pláss fyrir aukna starfsemi.Forstjóri ...
Aunt who died in Middlesbrough house fire was 'beautiful soul'
📅 26.08.2026 👁️ 1
Aunt who died in Middlesbrough house fire was 'beautiful soul'
Two men have been arrested on suspicion of murder over the fire in Middlesborough, police say.
Regnbogafánum stolið frá Orkuveitunni - „Við hörmum þetta atvik“
📅 26.08.2026 👁️ 1
Regnbogafánum stolið frá Orkuveitunni - „Við hörmum þetta atvik“
Orkuveitan greinir frá því að regnbogafánum hafi verið stolið við höfuðstöðvarnar. Þegar hafa verið keyptir nýjir fánar og dregnir að húni.Þetta kemur...
Svona var á­varp Krist­rúnar vegna at­kvæða­greiðslunnar - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Svona var á­varp Krist­rúnar vegna at­kvæða­greiðslunnar - Vísir
Viðburðurinn, sem kallast „Þjóðin ræður“, rúllaði af stað klukkan 17:30 en í tilkynningu sem var send út fyrir fögnuðinn sagði að Kristrún myndi þar f...
Lítilsvirðandi að segja að upp­sagnirnar muni ekki bitna á þjónustu - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Lítilsvirðandi að segja að upp­sagnirnar muni ekki bitna á þjónustu - Vísir
Í gær var tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar sagt upp störfum í hópuppsögn sem nær til velferðar-, frístunda-, og skólasviða. Breytingarnar leiða til...
Vand­ræða­legt þegar stjórn­mála­menn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu - Vísir

„Þekkingarleysið á þessum málaflokkum skín í gegn í tali þeirra“
📅 26.08.2026 👁️ 1
„Þekkingarleysið á þessum málaflokkum skín í gegn í tali þeirra“
Formaður Sameykis segir umfangsmiklar skipulagsbreytingar á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar einkennast af þekkingar- og s...
Moment Peter Kay interrupts live weather forecast
📅 26.08.2026 👁️ 1
Moment Peter Kay interrupts live weather forecast
Comedian Peter Kay interrupted North West Tonight weather presenter live on-air
Canal killer John Sweeney, who dismembered victims, dies in jail
📅 26.08.2026 👁️ 1
Canal killer John Sweeney, who dismembered victims, dies in jail
John Sweeney was serving a whole-life sentence after being convicted in 2011 of the two murders.
Bill Gates spáir fyrir um hættur gervigreindar
📅 26.08.2026 👁️ 1
Bill Gates spáir fyrir um hættur gervigreindar
Bill Gates spáir fyrir um hættur gervigreindar Heim­ur­inn er hættu­lega óvið­bú­inn áhrif­um gervi­greind­ar, seg­ir Bill Gates, sem tel­ur hana munu...
Opinbera hvað brúðkaupsferðin til Íslands kostaði - „Veðrið var grunsamlega gott“
📅 26.08.2026 👁️ 1
Opinbera hvað brúðkaupsferðin til Íslands kostaði - „Veðrið var grunsamlega gott“
Kanadamaður greinir frá því í nýrri færslu á Reddit hvað brúðkaupsferð hans og nýbakaðrar eiginkonu hans til Íslands kostaði síðasta vor. Ferðin stóð ...
Orðið á götunni: „Áfram Ísland“ bindur allar vonir sínar við Katrínu Jakobsdóttur, stjórnarmann í fasteignafélagi
📅 26.08.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: „Áfram Ísland“ bindur allar vonir sínar við Katrínu Jakobsdóttur, stjórnarmann í fasteignafélagi
Katrín Jakobsdóttir var eitt sinn vonarstjarna félagshyggjufólks á Íslandi. Sú sem átti að sameina þau öfl og mynda framfarasinnaða stjórn sem myndi a...
Sema neitar sök í fjársöfnunarmálinu og sendir pillu á Einar S. Hálfdánarson
📅 26.08.2026 👁️ 1
Sema neitar sök í fjársöfnunarmálinu og sendir pillu á Einar S. Hálfdánarson
Sema Erla Serdaroglu, hjá samtökunum Solaris, mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í dag til að svara til saka vegna ákæru um brot á lögum um opinberar fjárs...
„Ég held að það vilji enginn enda þannig að vera inni í skáp í líkhúsi“
📅 26.08.2026 👁️ 1
„Ég held að það vilji enginn enda þannig að vera inni í skáp í líkhúsi“
Framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur segir ekki skýrt í lögum hver beri ábyrgð á líki frá útgáfu dánarvottorðs þar til útför fer fram. Um þrjú hun...
Camilla Rut og Val­geir hafa slitið trú­lofuninni - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Camilla Rut og Val­geir hafa slitið trú­lofuninni - Vísir
Það er mbl.is sem greinir frá en þar er haft eftir Camillu að þau séu enn bestu mátar en hún hefur nú flutt búferlum að Hellishólum ásamt sonum sínum....
Moment Peter Kay gatecrashes North West Tonight weather
📅 26.08.2026 👁️ 1
Moment Peter Kay gatecrashes North West Tonight weather
The comedian interrupted North West Tonight weather presenter Molly Brewer as she gave her report.
Leik­skóli spratt upp eins og gor­kúla - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Leik­skóli spratt upp eins og gor­kúla - Vísir
Nánast fullbúin bygging er risin við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal sem mun hýsa sjö deilda leikskóla fyrir 120 börn. Á tæpum mánuði hefur svæðið umturna...
Virðisaukaskattur á baðlón umdeildur
📅 26.08.2026 👁️ 1
Virðisaukaskattur á baðlón umdeildur
Forsvarsmenn baðlóna hér á landi hafa gagnrýnt harkalega þá hugmynd að hækka virðisaukaskatt úr 11% í 24% á þeirra starfsemi. Slíkt er inni í áformum ...
UK weather: New thunderstorm warnings as rain set to continue
📅 26.08.2026 👁️ 1
UK weather: New thunderstorm warnings as rain set to continue
The Met Office has issued fresh thunderstorm warnings for Thursday with the potential for England and Wales to see flash flooding as the unsettled wea...
Nýtt áhættumat sýnir veikleika í snjóflóðavörnum Siglufjarðar
📅 26.08.2026 👁️ 1
Nýtt áhættumat sýnir veikleika í snjóflóðavörnum Siglufjarðar
Nýtt mat á hættu vegna ofanflóða fyrir Siglufjörð sýnir að bærinn er ekki eins vel varinn fyrir snjóflóðum og áður var talið. Lagt var fram endurskoða...
Láti eins og þjóðin geti ekki skilið um hvað málið snúist - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 2
Láti eins og þjóðin geti ekki skilið um hvað málið snúist - Vísir
Nú þegar aðeins eru þrír dagar til stefnu og kosningabaráttur beggja hliða að ná hámarki hafa verið haldnir ýmsir fundir, pallborð og kappræður en Kri...
Af­hjúpi ekkert nema þeirra eigin við­horf til fólksins í landinu - Vísir

Illa lagður pallbíll upp­hafið að nágrannaerjum - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 2
Illa lagður pallbíll upp­hafið að nágrannaerjum - Vísir
Á sömu stöð bárust tilkynningar um aðila í mjög svo slæmu ástandi vegna ölvunar í hverfi 108 en honum var ekið heim af lögreglu. Þá var tilkynnt um þj...
Pall­bíll sem var illa lagt upp­hafið að nágranna­erjum - Vísir

Svip­leg starfs­lok, í beinni frá fjölda­fundi og söng­kona sem syrgir - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Svip­leg starfs­lok, í beinni frá fjölda­fundi og söng­kona sem syrgir - Vísir
Við verðum í beinni frá fjöldafundi í Austurbæjarbíó þar sem Kristrún Frostadóttir ávarpaði gesti vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar – og í beinni frá fu...
Velta fyrir sér hvort aukin notkun Ozempic sé að hafa óvæntar afleiðingar í för með sér
📅 26.08.2026 👁️ 2
Velta fyrir sér hvort aukin notkun Ozempic sé að hafa óvæntar afleiðingar í för með sér
Töluvert hefur dregið úr ofbeldisfullum glæpum í Bandaríkjunum og rannsakendur eru eðlilega nokkuð spenntir að finna út hvað hefur valdið þessari ánæg...
Garpurinn sem synti í kringum Ísland sleppti þessari rútínu aldrei - „Ég veit að ég varð að ná tökum á þessu“
📅 26.08.2026 👁️ 1
Garpurinn sem synti í kringum Ísland sleppti þessari rútínu aldrei - „Ég veit að ég varð að ná tökum á þessu“
Breski sundgarpurinn Ross Edgley sem synti í kringum Ísland sumarið 2025 greinir frá því að hann hafi aldrei sleppt einni rútínu. Að sinna hármeðferði...
Tekjur Sýnar jukust á öðrum ársfjórðungi
📅 26.08.2026 👁️ 2
Tekjur Sýnar jukust á öðrum ársfjórðungi
Heildartekjur Sýnar á öðrum ársfjórðungi jukust um 2,8% milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu var vöxturinn 5,5%. Þetta kemur fram í tilk...
Stuðningur Íslands er „Úkraínumönnum lífsspursmál“
📅 26.08.2026 👁️ 2
Stuðningur Íslands er „Úkraínumönnum lífsspursmál“
Stuðningur Íslendinga í hernaðarmálum, á stjórnmálasviði, í orkumálum og við mannúðaraðstoð er Úkraínumönnum lífsspursmál. Þetta segir í yfirlýsingu R...
Harry og Meghan eru komin til Bretlands
📅 26.08.2026 👁️ 2
Harry og Meghan eru komin til Bretlands
Harry Bretaprins og Meghan hertogynja af Sussex eru snúin aftur til Bretlands eftir sex ára búsetu vestanhafs. Samkvæmt BBC komu þau með einkaflugvél ...
Flaggað í hálfa stöng í banda­ríska sendi­ráðinu - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 2
Flaggað í hálfa stöng í banda­ríska sendi­ráðinu - Vísir
Kántrísöngkonan lést í gær á heimili sínu, 80 ára að aldri, eftir skammvinna baráttu við krabbamein. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því í ...
Flestir treysta RÚV en fæstir DV
📅 26.08.2026 👁️ 2
Flestir treysta RÚV en fæstir DV
Flestir treysta umfjöllun fréttastofu RÚV um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem var unnin fyrir frét...
US designates Palestine Action a terrorist group
📅 26.08.2026 👁️ 1
US designates Palestine Action a terrorist group
Supporting Palestine Action became illegal in the UK in 2025 after the government banned it under anti-terror legislation.
Funeral held for renowned Palestinian artist Sliman Mansour
📅 26.08.2026 👁️ 2
Funeral held for renowned Palestinian artist Sliman Mansour
The 79-year-old was best known for paintings depicting the Palestinian landscape and cultural scenes featuring Palestinian symbols of identity.
ESB og Noregur næra milljarða dollara spillingu í Úkraínu
📅 26.08.2026 👁️ 2
ESB og Noregur næra milljarða dollara spillingu í Úkraínu
ESB og Noregur næra milljarða dollara spillingu í Úkraínu Fréttin26. ágúst 2026Erlent, Spilling, ÚkraínustríðiðLeave a Comment „Jonas Gahr Støre forsæ...
Bein út­sending: Krist­rún með á­varp vegna at­kvæða­greiðslunnar - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 2
Bein út­sending: Krist­rún með á­varp vegna at­kvæða­greiðslunnar - Vísir
Viðburðurinn, sem kallast „Þjóðin ræður“, hefst klukkan 17:30 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. Í tilkynningu segi...
Hægt að gera betur í að koma upplýsingum til ferðamanna
📅 26.08.2026 👁️ 2
Hægt að gera betur í að koma upplýsingum til ferðamanna
„Ísland verður sennilega seint það öruggur áfangastaður að enginn okkar erlendu gesta muni lenda í óhöppum en við getum gert betur í að koma til þeirr...
Portrait of Ann Widdecombe put up in Parliament for MPs' return
📅 26.08.2026 👁️ 2
Portrait of Ann Widdecombe put up in Parliament for MPs' return
The framed photograph forms part of work by MPs to install a permament memorial for the former minister.