Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur deilt drögum að friðarsamkomulagi vegna stríðsins við Íran meðal bandamanna sinna, þar á meðal Ísraels, að því er fram kemur í umfjöllun breska fjölmiðilsins Guardian.
Drögin kunna þó að falla í grýttan jarðveg hjá ísraelskum stjórnvöldum ef litið er til fyrri krafa þeirra til mögulegs friðarsamkomulags.
Undanfarna daga hafa brot á gildandi vopnahléi orðið tíðari, og nú reyna báðar hinna stríðandi fylkinga að koma í veg fyrir að stigmögnun verði í átökum milli landanna sem kæmi í veg fyrir friðarsamkomulag þeirra á milli.
Svipuð þeim sem verið hafa í dreifingu
Með það fyrir augum að flýta fyrir samningaviðræðunum mun utanríkisráðherra Pakistans, Mohammad Ishaq Dar, fljúga til Washington-borgar á morgun til fundar við bandarískan kollega sinn, Marco Rubio.
Drögin sem Trump hefur deilt munu ekki vera ýkja frábrugðin þeim sem verið hafa í dreifingu í Miðausturlöndunum dögum saman, en samkvæmt þeim yrði opnað fyrir umferð kaupskipa um Hormússund, hafnarbanni Bandaríkjanna á íranskar hafnir yrði aflétt og Íran fengi aðgang að frystum eignum að virði allt að 12 milljarða bandaríkjadala, eða um 1.474 milljarða íslenskra króna.
Markmiðið væri að kaupskipasiglingar í sundinu næðu sama stigi og fyrir stríð innan 30 daga og að samningaviðræður um framtíð kjarnorkuáætlunar Írans hæfust, en gert er ráð fyrir að þær gætu staðið í allt að 60 daga.
Ísrael á móti skapi
Slíkar viðræður myndu varða birgðir Írana af auðguðu úrani, tímabundna stöðvun frekari auðgunar og eftirlit kjarnorkueftirlits Sameinuðu þjóðanna, og Íran myndi ekki notast við kjarnorkuvopn.
Núverandi ákvæði samkomulagsins yrðu Ísrael þó mjög á móti skapi, þar sem innan þeirra yrði því frestað að Íran gæti einhverjar fastar skuldbindingar varðandi kjarnorkumál, og krefst þess einnig að varanlegt vopnahlé nái til Líbanon, sem Ísrael hefur staðið í árá