Efst á síðunni, takist að opna hana, kemur upp gulur borði um að truflanir séu á þjónustu vefsins og að unnið sé að viðgerð. Sá borði sést þó ekki hjá öllum sem heimsækja vefinn.
Island.is á er eins konar þjónustumiðstöð fyrir landið þar sem hægt er að nálgast alls konar opinbera þjónustu og upplýsingar.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi í mars út álit þar sem yfirvöldum á Íslandi var gert að breyta island.is. Var það sökum þess að vefsíðan uppfyllti ekki EES-reglur. Yfirvöldum voru gefnir tveir mánuðir til að bæta vefinn.