Það verður væntanlega mikið líf og fjör hjá Toyota í Kauptúni um helgina en á morgun, laugardag, fer þar fram sumarveisla. Ákveðið var að blása til veislunnar í ljósi þess að vegna framkvæmda á lóð fyrirtækisins við Kauptún verður ekki hægt að halda þjónustudaginn svokallaða sem haldinn hefur verið í mörg ár þar sem fólki er boðið upp á bílaþvott.
„Við höfum verið með þjónustudag síðustu áratugi og nú, vegna breytinga hjá okkur og framkvæmda á bílaplani, ákváðum við að breyta þessu í svona fjölskyldudag,“ segir Haraldur Þór Stefánsson, framkvæmdastjóri Toyota á Íslandi, í samtali við Morgunblaðið.
Alger gleði
„Þetta verður bara alger gleði, það verður karókí og ýmsar skemmtilegar uppákomur,“ segir Haraldur en Íþróttaálfurinn og Solla Stirða munu stíga á svið á hátíðinni klukkan 13.30.
Þá mun skemmtikrafturinn Sandra Barillí stýra karókíinu fyrrnefnda.
Tekið verður á móti gestum í útibúi Toyota í Kauptúni klukkan 12-16. Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir gesti.
Frumsýna sýningarsal
Haraldur segir að með hátíðinni sé einnig verið að fagna nýjum sýningarsal sem hefur undirgengist miklar breytingar. „Við erum búin að gjörbreyta salnum sem er bæði til hagsbóta fyrir viðskiptavini og starfsfólk,“ segir hann en innréttingar í salnum voru endurnýjaðar sem og aðstaða fyrir viðskiptavini. Þá var ný lýsing hönnuð fyrir salinn og njóta bílarnir sín mun betur í nýju sviðsljósi.
Í sýningarsalnum verður jafnframt öll nýjasta línan frá Toyota, þar á meðal nýr RAV4 og nýjustu rafmagnsbílarnir: Urban Cruiser, C-HR+ og bZ4X. Einnig verður bZ4X Touring, stærri útgáfan af módelinu, forsýnd á laugardaginn.
„Já, bZ4X Touring verður þarna til sýnis. Þetta er virkilega spennandi bíll,“ segir Haraldur Þór að lokum.