Argentínski varnarmaðurinn Marcos Senesi verður leikmaður enska knattspyrnufélagsins Tottenham.
Þetta fullyrðir ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano en Senesi, sem er 29 ára gamall, skrifar undir fjögurra ára samning í Norður-Lundúnum.
Senesi kemur til félagsins á frjálsri sölu en samningur hans við Bournemouth rennur út í sumar.
Senesi kom til Bournemouth sumarið 2022 og var lykilmaður í uppgangi félagsins síðustu ár en liðið leikur í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.
Skoski landsliðsfyrirliðinn Andy Robertson er einnig á leiðinni til Tottenham á frjálsri sölu en samningur hans við Liverpool rennur út í næsta mánuði.