Neytendastofa úrskurðaði fyrst í málinu þann 24. janúar 2025. Í úrskurðinum kemur fram að Happyworld hafi ekki svarað ítrekuðum bréfum Neytendastofu. Svör bárust eftir að úrskurðað hafði verið og samþykkti Neytendastofa að taka málið upp á ný með andmæli fyrirtækisins til hliðsjónar.
Í svörum Happyworld sagði að félagið starfaði á sviði kennslu og byði eingöngu upp á kynningar- og kennsluflug. Félagið gæti ekki borið ábyrgð á því hvernig endursöluaðilar settu upp eða orðuðu auglýsingar.
Í endurúrskurði staðfestir Neytendastofa fyrri ákvörðun sína í málinu. Sýnt hafi verið fram á með gögnum að Happyworld hafi boðið upp á útsýnisflug, gegn gjaldi, á vélknúnu fisi. Neytendastofa bannaði Happyworld því að auglýsa útsýnisflug á fisi gegn gjaldi. Sekt sé lögð á félagið vegna viðskiptahátta þess sem séu óheimilir og óréttmætir.
Þá var upphæð sektarinnar tvöfölduð frá tvö hundruð upp í fjögur hundruð þúsund krónur.