Það er kominn miður júlí og landsmenn gleðjast og fagna víða um land. Á Drangsnesi er haldin bryggjuhátíð sem á sér langa sögu.
Ísabella Benediktsdóttir Petersen, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir allt klárt fyrir hátíðarhöld sem hefjast hvað úr hverju. „Núna er bara komið að því að fara að njóta, taka á móti gestum og fagna þessu afmæli,“ segir hún en í ár er þrjátíu ára afmæli bryggjuhátíðarinnar.
„Við leggjum mikla áherslu á að það sé eitthvað fyrir alla og við erum með mjög þétta dagskrá í ár. Hápunktur fyrir marga er að sjálfsögðu sjávarréttasmakkið hjá kvenfélaginu Snót,“ segir Ísabella.
Stemning að tjalda í görðum
Þar að auki verður dagskrá fyrir börnin, markaðstorg, dorgveiðikeppni og töfrasýning auk þess sem gestum og gangandi býðst að prófa skotfimi og að sigla kajak. Kvöldið endar á brekkusöng og balli.
„Þetta stefnir í nokkuð góða helgi. Veðurspáin lítur einmitt nokkuð vel út. Það er farið að verða margt á tjaldsvæðinu en við erum búin að gera ráð fyrir því og stækkuðum tjaldsvæðið og bættum við fleiri rafmagnstenglum. Þannig að það er pláss fyrir alla sem vilja koma.“
Garðar á Drangsnesi eru líka að fyllast af tjöldum að sögn Ísabellu sem segir það stóran hluta af stemningu bryggjuhátíðarinnar.