Í gær greindi fréttastofa frá aðgerðum sérsveitarinnar við bílaplan í Hveragerði. Myndband barst af aðgerðunum þar sem sjá má fjóra sérsveitarmenn koma hlaupandi að fólksbifreið, margir hverjir vopnaðir skotvopnum. Þar sjást þeir leita snögglega í bílnum en virðast ekki hafa fundið neitt.
Ökumaður bílsins var kona sem var handjárnuð á staðnum. Ekki fást upplýsingar um hvort hún hafi verið færð í fangageymslu eða yfirheyrð. Varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi segir í stuttu samtali við fréttastofu embættið ekki ætla að tjá sig um málið um helgina.