Í kvöldfréttum Sýnar var verkstaðurinn við Breiðholtsbraut í Víðidal heimsóttur. Tæp þrjú ár eru frá því framkvæmdir hófust en um fimmtíu manns starfa núna á svæðinu á vegum verktakanna.
„Verktakarnir eru tveir, Suðurverk og Loftorka, og þeim hefur sóst verkið bara vel. Þetta hefur gengið áfallalaust. Þannig að við erum bara ánægð með það, allavega það sem búið er,“ segir Höskuldur Tryggvason, verkefnisstjóri Vegagerðarinnar við Arnarnesveg.
Viðamikil stígagerð fylgir verkefninu, þar á meðal um Víðidal, en göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár var fyrsta mannvirkið sem tekið var í notkun.
Ný brú yfir Breiðholtsbraut er þó stærsta mannvirkið og er búið að malbika hluta vegtenginga. Áætlað er að nýja brúin verði opnuð eftir rúmlega mánuð. Samhliða verða ný gatnamót, ljósastýrð gatnamót, opnuð á móts við Urðahvarf, gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar.
„Já, það gerist einmitt um mánaðamótin júní-júlí, að það verði opnað.“
-Margir héldu að þeir fengju hérna mislæg gatnamót. En þau verða ekki alveg mislæg?
„Nei, þau verða það ekki, það verður ljósastýring hérna,“ segir Höskuldur hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Samtímis verður gatnamótum Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs lokað tímabundið og þeim breytt. Umferð inn og út úr hverfinu mun þá fara um nýtt hringtorg og nýja tengingu Vatnsendavegar við Arnarnesveg.
Síðdegis var gerður lítill bráðabirgðarampur upp á nýju brúna, svo vinnuvélar gætu ekið yfir. Þá urðu þau tímamót að fyrsti bíllinn ók yfir brúna.
Framundan er svo að klára lengsta vegarkaflann, tenginguna inn í Sala- og Kórahverfi og að núverandi Arnarnesvegi. Á þeirri leið verða bæði göngubrú yfir veginn og undirgöng undir hann.
„Þetta verður seinni hluti opnunarinnar á veginum sem verktakinn áætlar að opna núna í október. Það er þá lokaáfanginn. Sem sé frá þessum Vatnsendavegi hérna og yfir að Rjúpnavegi í Kópavogi,“ segir Höskuldur.
Og víst má telja að margir fagni vegarbótunum.
„Náttúrulega léttir á þessu ástandi sem er hérna. Við sjáum það hérna á annatímum, þá eru hérna langar raðir. Þannig að vonandi munu þær styttast með tilkomu þessa mannvirkis,“ segir verkefnisstjórinn.
Þetta er einhver mesta vegagerð sem sést hefur á Reykjavíkursvæðinu frá aldamótum. Verkið heyrir undir Samgöngusáttmálann og er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna, Veitna og Mílu.
„Bæði þessi vegagerð og göngu- og hjólastígagerð. Til viðbótar því þá er mikil lagnavinna hérna líka, meðal annars við stofnlögn hitaveitu hérna meðfram Breiðholtshlutanum, Suðuræð tvö. Það eru háspennustrengir, kaldavatnslagnir - allur þessi pakki er svona um tíu milljarðar, hann deilist á fleiri aðila,“ segir Höskuldur Tryggvason.