Grein Per Ekström, fyrrverandi ráðuneytisstjóra sem gætti hagsmuna Álandseyja við inngöngu Finnlands í Evrópusambandið á sínum tíma, hefur vakið mikla athygli og umræður en Per svarar þeim sem hafa haldið því fram að ekki sé hægt að fá ótímabundnar undanþágur frá Evrópusambandinu í aðildarviðræðum. Í grein sinni á Vísi í gær rifjar Per, sem hefur verið búsettur á Íslandi í tæp þrjátíu ár, upp reynslu sína af möguleikum á að fá varanlegar undanþágur þegar lönd sækja um aðild að ESB.
Titringur eftir upprifjun ráðuneytisstjórans fyrrverandi: „Veit líklega meira um málið en nokkur Íslendingur sem tjáð hefur sig um það“