Eva Katrín er annar eiganda tískuverslunarinnar Andrá og Ragnar Jón er fréttamaður á Rúv.
„Eftir 9 æðisleg ár er komin tími til að breyta til. Tímum varla að fara því við eigum bestu nágranna ever,“ skrifar Eva Katrín í færslu á Facebook og deilir því að opið hús sé í dag.
Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2017 og er með þremur svefnherbergjum.
Hér má nálgast nánari upplýsingar um eignina.