Elsti hafnargarður Hafnarfjarðarhafnar, svokallaður Norðurgarður, hefur tekið miklum breytingum að undanförnu. Stórvirkar vinnuvélar og hópur iðnaðarmanna hefur sl. mánuði endurgert garðinn að fullu. Nú þegar steypu- og jarðvegsvinnu er lokið er áhersla lögð á frágang.
Smíðað verður nýtt timburdekk ofan á garðinn og er sú vinna langt komin, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Settir verða upp setpallar og yst á Norðurgarði verður smíðað nýtt innsiglingarljós, útsýnis- og dorgveiðipallur og útbúið setsvæði. Ofan við garðinn verður settur upp útsýnispallur.