Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar segir að tilkynnt hafi verið um líkamsárás í hverfi 101. Einn var handtekinn og vistaður í fangageymslu en sá sem ráðist var á var fluttur á bráðamóttöku til skoðunar en upplýsingar um líðan koma ekki fram.
Þá var tilkynnt um innbrot og þjófnað í íbúðarhúsnæði í miðbænum. Í tilkynningu lögreglu segir að gerandi sé ókunnur og að málið sé til rannsóknar.
Einnig voru fjórir handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og við athugun kom í ljós að þrír þeirra voru próflausir þar að auki. Var þeim öllum sleppt lausum að lokinni blóðsýnatöku.
Alls voru fimmtíu mál skráð í kerfi lögreglu frá því klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í nótt og gistu þrír fangageymslu lögreglunnar.