Orkuveitan metur Hagavatnsvirkjun sem álitlegan virkjunarkost og hefur gengið til samstarfs við Íslenska Vatnsorku ehf. í því skyni að þróa virkjunarkostinn, en fyrirtækið sérhæfir sig í þróun lítilla og meðalstórra virkjana. Horft er til allt að 20 MW virkjunar, en afl hennar er þó sagt háð ákveðnum óvissuþáttum.
Hagavatn er í Langjökli sunnanverðum og hafði Orkuveitan á hendi rannsóknarleyfi á svæðinu á árunum 2006-2011 og er fyrirtækið því kunnugt staðháttum.
Orkuveitan sér tækifæri til aukinnar raforkuframleiðslu á næstu árum og segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, að verkefnið sé í takti við þá stefnu sem fyrirtækið hefur markað sér um að auka orkuöflun með ábyrgum hætti.
„Við erum að horfa meira til fjölbreyttra og meðalstórra orkukosta sem saman byggja upp sterkara og sveigjanlegra orkukerfi. Hagavatn er gott dæmi um slíkt verkefni sem getur skapað verðmæti, aukið afhendingaröryggi og fellur vel að markmiðum okkar um sjálfbæra auðlindanýtingu,“ segir Sævar.
Hann bendir jafnframt á að vatnsafl gegni mikilvægu hlutverki í orkukerfinu, bæði sem grunnafl og til að bregðast við sveiflum, til að mynda í tengslum við aukna nýtingu vindorku.
„Vatnsafl er traust undirstaða orkukerfisins og veitir okkur jafnframt sveigjanleika til að mæta breytilegri framleiðslu. Hagavatn er áhugaverður kostur þar sem hægt er að nýta fallorku með tiltölulega hóflegum mannvirkjum miðað við umfang,“ segir hann.
Að hans sögn fellur slíkur kostur vel að umhverfinu og geti jafnvel haft jákvæð áhrif á nærsvæðið.
„Þarna er um að ræða lausn sem getur fallið vel inn í landslagið og unnið gegn sandfoki í nágrenninu. Í því samhengi getur verkefnið haft jákvæðari umhverfisáhrif en margri aðrir kostir,“ bætir Sævar við.
Hann bendir jafnframt á að aukin eftirspurn eftir raforku, bæði frá heimilum og atvinnulífi, kalli á markviss viðbrögð og frekari uppbyggingu í orkuöflun. Þá segir hann Orkuveituna þekkja kostinn vel eftir að hafa haldið á rannsóknarleyfi þar í fimm ár.
Farið verður í frekari undirbúning verkefnisins á næstu misserum og verður uppbygging Hagavatnsvirkjunar háð því að tiltekin skilyrði verði uppfyllt, að sögn Sævars, sem nefnir að Orkuveitan hafi á undanförnum árum lagt aukna áherslu á fjölbreyttar leiðir í orkuöflun. Þar sé horft bæði til jarðhita, vatnsafls og nýsköpunar í tengdum greinum.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.