Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við fréttastofu. Rúv greindi fyrst frá.
Knapinn féll af baki í Þrengslagili í Hrunamannahreppi nú í morgun. Þyrlan var kölluð út rétt eftir klukkan tíu en ekki á mesta forgangi. Meiðslin voru þó þess eðlis að talið var best að flytja hann á sjúkrahús með þyrlunni.
Þetta útkall mun ekki hafa áhrif á dagskrá Landhelgisgæslunnar sem fagnar 100 ára afmæli sínu í dag. Þyrlu Landhelgisgæslunnar verður lent fyrir framan Hörpu nú klukkan eitt og má búast við einhverjum umferðartöfum á meðan.