Cenat er í beinni útsendingu hér á Íslandi og sýnir áhorfendum sínum frá því hvað hann er að gera. Fyrr í morgun fékk hann leikara klæddan í víkingabúning til að hitta sig í Hljómskálagarðinum og léku þeir eftir alls konar víkingaþrautir.
Stór hópur safnaðist saman í kringum þá í von um að sjá Cenat og ef til vill komast í beinu útsendinguna. Cenat er með tæplega 22 milljónir fylgjenda á streymisveitunni Twitch.
Cenat lagði leið sína síðan í bílinn sem stóð við Bragagötu. Á myndskeiði sem fréttastofa hefur undir höndum má sjá hópinn hlaupa á eftir Cenat sem átti í miklum erfiðleikum með að stoppa. Öryggisverðir hans báðu aðdáendurna ítrekað að stoppa án nokkurs árangurs.
Hann heldur beinu útsendingunni áfram og hægt er að horfa á hana hér fyrir neðan.
Með Cenat er Stefán Kári Ottósson leikari og leiðsögumaður. Í útsendingunni fræðir Stefán Cenat um íslenska menningu.