Vegir hafa lokast á norðanverðum Vestfjörðum og á Ströndum vegna skriðufalla og grjóthruns síðustu daga. Spáð er áframhaldandi úrkomu fram yfir helgi.
Mesta úrkoman mældist á Suðureyri
Skriðuviðvaranir eru í gildi á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum vegna mikillar úrkomu sem hófst á fimmtudag. Mesta úrkoman mældist á Suðureyri, yfir 120 millimetrar.
Nokkrar skriður féllu í gær, meðal annars á Ströndum, og nokkuð hefur verið um grjóthrun sem hefur fallið á vegi.
Vegurinn í Árneshreppi lokaðist í gær eftir að skriða féll í Kaldabaksvík.
„Það hefur ekki dregið úr úrkomu en hiti hefur lækkað aðeins sem er jákvætt fyrir skriðuhættu, það dregur þá aðeins úr henni,“ segir Unnur Blær Bartsch, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
„En úrkoman heldur samt áfram og á morgun mun hiti hækka áfram aftur. Þannig að við teljum að staðan sé sú að það sé enn hætta á skriðum og grjóthruni, þá aðallega í neðri hluta hlíða því það snjóar til fjalla.“
Skriðuviðvaranir í gildi fram yfir helgi
„Staðan verður endurmetin á morgun og síðan aftur á mánudag. En viðvaranirnar munu standa fram á aðfaranótt mánudags,“ segir Unnur.
Vegfarendur sem eiga leið um svæðið eru hvattir til þess að fara með gát.
„Og bara fylgjast með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar og nýjustu upplýsingum frá Vegagerðinni varðandi skriðuhættu.“