Viðburðurinn Fellum þessa ríkisstjórn var stofnaður af Alexöndru Mist Halldórsdóttur á Facebook. Í lýsingu viðburðarins er efnt til mótmæla vegna ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.
Ekki er ein sérstök uppákoma eða ákvörðun að baki mótmælunum miðað við lýsingu viðburðarins.
„Látum í okkur heyra og mótmælum hækkunum og segjum burt með þessa ríkisstjórn. Mætum með trommur, lúðra, skilti og allt mögulegt,“ segir í lýsingunni.
Alls höfðu um 5500 manns brugðist við viðburðinum. 659 sögðust ætla að mæta og taka þátt í mótmælunum en tæplega fimm þúsund manns sögðust hafa áhuga. Viktor Freyr, ljósmyndari Vísis, er á svæðinu og miðað við ljósmyndir hans má telja að á milli fimmtíu og sjötíu mótmælendur séu mættir á Austurvöll.