Óhugnanlegt myndband náðist af því þegar nemandi réðist á kennara sinn með hníf í Brasilíu. Betur fór en á horfðist því að kennarinn slapp með lítil meiðsli en nemandinn var handtekinn.Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.Árásin átti sér stað þann 11. september síðastliðinn í Dr. Gerson dos Santos framhaldsskólanum í borginni Cametá í norðausturhluta Brasilíu. En þá réðist ónefnd sautján ára stúlka, nemandi í skólanum, á kennara sinn, konu að nafni Betania de Almeida.
Óhugnanlegt myndband sínir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf