Formaður Starfsgreinasambandsins segist bjartsýnn á að kjarasamningar haldi eftir að samþykkt var á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær að hækka ekki gjaldskrár umfram 2,5% á næsta ári. Hann telur einstaka verðfrystingar fyrirtækja ekki hafa tilætluð áhrif.
Nokkur fyrirtæki hafa tilkynnt frystingu á verðlagi eftir að VR, Landssamband íslenskra verzlunarmanna og fagfélögin hvöttu til frystinga.
„Einstakar aðgerðir varðandi frystingu eru ekki nægilegar að mínum dómi, alls ekki,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sem nefnir að slíkt hafi þegar verið reynt árið 2024 fyrir undirritun kjarasamninga án árangurs. Þá hafi Breiðfylking Starfsgreinasambandsins, Eflingar, Byggiðnar og Samiðnar hvatt til verðfrystinga.
„Það voru fyrirtæki eins og Byko, Ikea og fleiri fyrirtæki sem frystu verð í X langan tíma, síðan fjaraði þetta bara allt út, menn fylgdu ekki eftir því að halda aftur af verðlagi og við vitum hvernig fór, nú eru forsendur farnar,“ segir Vilhjálmur.
Stórt skref stigið fyrir helgi
Vilhjálmur telur að stærra skref hafi verið stigið um helgina þegar samþykkt var ályktun á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga um að halda gjaldskrárhækkunum við 2,5% á næsta ári.
Hann segist hafa átt mörg símtöl fyrir helgi við bæjarstjóra og fulltrúa á sveitarstjórnarstigi á meðan landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fór fram í vikunni.
„Mörg sveitarfélög voru búin að tilkynna að þau myndu bara láta 2,5% gilda fyrir barnafólk, en sem betur fer ákváðu sveitarfélögin að hlusta á okkur í Breiðfylkingunni og samþykktu að almennar gjaldskrár sveitarfélaganna fyrir næsta ár myndu einungis hækka um 2,5%,“ segir Vilhjálmur
Stjórnvöld verði að svara í sömu mynt
Ýmislegt sé þó eftir þar sem Vilhjálmur telur að stjórnvöld verði að gefa það út á allra næstu dögum að gjaldskrár ríkisins hækki ekki um meira en 2,5%.
„Þær eiga að hækka um 5,2% og þar þarf kílómetragjaldið líka að vera undir, stjórnvöld geta ekki vikið undan sinni ábyrgð,“ segir VIlhjálmur. Fjármálaráðherra gaf þó í skyn í fréttum í gær að gjaldskrárhækkanir gætu orðið lægri en 5,2%
Vilhjálmur telur að ef ríkið tekur þátt séu mun meiri líkur á því að kjarasamningar haldi. Verkalýðsfélögin hafa til 8. október til að ákveða hvort kjarasamningar haldi eða hvort segja eigi þeim upp.
Hugmynd að nýju forsenduákvæði lögð fram
Vilhjálmur segir að Breiðfylkingin hafi lagt fram hugmynd að nýju forsenduákvæði fyrir kjarasamninga sem fæli í sér að ef verðbólga væri ekki komin niður í 3,5% í september á næsta ári yrðu samningar lausir fjórum mánuðum fyrr en þeir ættu að vera.
„Í þessu væri þá fólgin mikil áskorun fyrir verslun og þjónustu, fyrir fyrirtæki með verðmyndandi þætti, fyrir sveitarfélögin, fyrir stjórnvöld og alla að ná þessu markmiði og kýla verðbólguna hér niður, okkur öllum til hagsbóta,“ segir Vilhjálmur sem telur að með þessu myndu vextir myndu þá einnig lækka.
Þegar hafi verið rætt við Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, og aðra innan samtakanna
„Vissulega stendur það í þeim en alltaf er þetta þannig að þegar menn eru að tala saman þurfa þeir að lokum að komast að niðurstöðu,“ segir Vilhjálmur sem segist ætla að krossleggja fingur um að samþykkt náist.
Hann segir að kröfur Breiðfylkingarinnar feli ekki í sér kröfur um launahækkanir.
„Stærsta krafan sem við erum með núna er að allir axli sína ábyrgð, fyrirtækin hækki ekki verðlag um meira en 2,5% og ríki og sveitarfélög einnig,“ segir hann.
Stutt er þangað til á reynir en stéttarfélögin verða að ákveða fyrir 8. október hvort kjarasamningar eigi að halda.
„Ég er bjartsýnn á að það takist, ég ætla að leyfa mér það sérstaklega eftir þetta útspil sveitarfélaganna í gær sem er gríðarlega mikilvægt, því bara svona lagað mun hafa áhrif á verðbólguvæntingar í íslensku samfélagi. Þegar menn finna það að menn ætla að standa saman þá munu verðbólguvæntingar hér taka við sér og þær munu falla skart niður,“ segir Vilhjálmur.