Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti tvo á Landspítalann rétt í þessu eftir fjórhjólaslys norðan Hólmavíkur. Landhelgisgæslan hefur brugðist við þremur þyrluútköllum það sem af er degi, segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.
Fyrr í dag var þyrlan kölluð í Stykkishólm vegna aflvana fiskbáts. Töluverður viðbúnaður var vegna þess en enginn slasaðist. Sex voru um borð í bátnum.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um atvikið skömmu eftir hádegi og ásamt þyrlusveit voru sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar og björgunarskip frá Rifi og Stykkishólmi kölluð á vettvang. Þá voru bátar í grenndinni beðnir um að fara á vettvang til aðstoðar.
Þrír slasaðir fluttir með þyrlu
Í fyrstu var talið að akkeri, sem áhöfnin lét falla, næði ekki að stöðva rek hans. Í tilkynningu segir að aðstæður hafi verið góðar og akkeri fiskibátsins haldið honum þar til björgunarskipið Björg tók hann í tog til hafnar í Stykkishólmi.
Þyrlan var svo kölluð út frá Stykkishólmi vegna fjórhjólaslyssins norðan Hólmavíkur og tók á loft á þriðja tímanum. Þyrlan lenti á Landspítalanum í Fossvogi laust fyrir klukkan fjögur.
Fyrr í dag varð slys um borð í rútu á Landmannaleið. Þyrlusveitin flutti einn slasaðan til Reykjavíkur.