Þrjár tilkynningar hafa borist Matvælastofnun, á síðustu fimm árum, um einstaklinga sem villtu á sér heimildir og sögðust vera í eftirliti á vegum stofnunarinnar. Engin tilkynninganna hefur verið kærð til lögreglu.
Fyrr í mánuðinum fór maður hesthúsa á milli á Eyrarbakka og kynnti sig sem eftirlitsmann Matvælastofnunar. Í ljós kom að það var hann alls ekki og tilkynntu umráðamenn dýranna hann til stofnunarinnar.
Ekki er vitað hver var að baki eða hvað hann hafði í hyggju. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, segir málið ekki hafa verið kært til lögreglu.
„Við höfðum samband við einn aðilann fékk þessa heimsókn til sín. Og viðkomandi gat gefið einhverja lýsingu á aðilanum en ekki neitt nákvæmt, þannig það voru ekkert mikið af upplýsingum sem lágu eftir sem við gátum byggt neina rannsókn á. Þannig við höfum ekki sett í gang neina rannsókn,“ sagði Hrönn.
Málinu er því í raun lokið án niðurstöðu. Hrönn segir fólk geta leitað sjálft til lögreglu, vilji það gera það.
Þetta er í þriðja sinn sem slíkt mál kemur inn á borð MAST á undanförnum fimm árum. Í öðru þeirra þóttist einstaklingur vera í eftirliti á dýralæknastofu og tilkynnti að loka ætti stofunni. Í hinu þóttist viðkomandi vera að kanna aðbúnað gæludýra í dýraathvarfi.
Í bæði skiptin runnu tvær grímur á þá sem tóku á móti eftirlitsfólkinu og var þá tilkynnt til MAST. Í þessum málum var ekki heldur kært og ástæðurnar sagðar þær sömu, að það hefðu ekki fengist nægar upplýsingar til að byggja rannsókn á.
Hefði ekki lögreglan meira bolmagn til þess að rannsaka þetta almennilega, skoða eftirlitsmyndavélar og slíkt?
„Jú, klárlega þegar slíkt er. En í engum af þessum tilfellum þá voru eftirlitsmyndavélar til staðar. Þannig við höfum svona látið staðar numið í þessum skiptum allavega.“
Aðalskilaboð MAST til fólks með dýr eru að eftirlitsaðilar á þeirra vegum séu í merktum fatnaði, á merktum bílum og með starfsmannaskírteini sem eðlilegt sé að þau sýni við heimsókn.
Eins er gott að fólk taki vel eftir og ef einhvern grunar að eftirlitsmaður sigli undir fölsku flaggi sé ráð að skrifa hjá sér bílnúmer og tilkynna.