Ökumaður og tveir farþegar hans í bifreið, sem ekið var framan á vörubifreið á ríkisvegi 3 við Kvikne í Innlandet-fylki klukkan tæplega sex að norskum tíma í morgun, létust allir við áreksturinn. Ökumann vörubifreiðarinnar, og farþega sem með honum var, sakaði ekki.
„Þessir þrír voru í bifreið á erlendum skráningarnúmerum, við vinnum nú að því að bera kennsl á fólkið og gera aðstandendum þess aðvart,“ segir Pål Gjestvang, stjórnandi lögreglu á vettvangi, í samtali við norska ríkisútvarpið NRK.
Veginum hefur verið lokað á meðan slysarannsóknadeild lögreglu vinnur sitt starf á vettvangi og reiknar Gjestvang með að lokunin muni vara um tíma.