Þrír voru handteknir fyrir líkamsárás og brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg í miðbænum í gærkvöld og í nótt.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Tilkynnt var um stolið ökutæki sem fannst síðan í Hafnarfirði.
Fimm ökumenn voru handteknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis og tveir ökumenn voru kærðir fyrir að aka gegn rauðu ljósi.