Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sér um Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes, en málinu er ekki lýst frekar. Er þetta meðal þeirra 89 mála sem skráð eru í dagbók lögreglunnar um störf næturinnar. Alls séu átta vistaðir í fangageymslu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af sextán ökumönnum grunuðum um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna en þeir voru allir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Í umdæmi Lögreglustöðvar tvö, sem sér um Hafnarfjörð og Garðabæ, var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna líkamsárásar á bar. Þá var einn handtekinn og vistaður grunaður um innbrot en málið sé í rannsókn.
Einnig var óskað eftir aðstoð lögreglu eftir að bíl var ekið á hús. Ekkert slys varð á fólki.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna líkamsárásar í heimahúsi í umdæmi lögreglustöðvar fjögur, sem sér um Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ.