Er þetta meðal þeirra 83 mála sem skráð eru í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um störf næturinnar en alls hafi tíu gist í fangageymslum.
Tilkynnt var um stolið ökutæki sem fannst í Hafnarfirði og fór málið í hefðbundið ferli.
Lögregla hafði nokkur afskipti af sex ökumönnum undir áhrifum áfengis- og/eða fíkniefna en allir voru fluttir á lögreglustöð í nótt í hefðbundið ferli og voru lausir að því loknu. Auk þess voru tveir kærðir fyrir að keyra yfir á rauðu ljósi.