Þorsteinn Pálsson skrifar: Sjö raundæmi um sjö raundæmi fyrrum forseta - DV

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sjö raundæmi um sjö raundæmi fyrrum forseta - DV

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sjö raundæmi um sjö raundæmi fyrrum forseta - DV

Á lýðveldistímanum hafa allar ákvarðanir um aðild Íslands að alþjóðlegu samstarfi byggst á tveimur megin stoðum: Annars vegar skýrri hugmyndafræði og hins vegar mati á efnahagslegum hagsmunum og öryggishagsmunum.

Nú stígur fyrrum forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson fram og segir að fulla aðild að Evrópusambandinu eigi aðeins að skoða út frá mati á raundæmum. Í hlaðvarpinu Chess After Dark tilgreindi hann fyrir tveimur vikum sjö raundæmi af tíu, sem hann sagðist hafa undirbúið sig með.

Um leið skopast hann að þeim, sem áfram vilja leggja vestræn gildi og hugmyndafræði um lýðræði, fullveldi og frjáls viðskipti til grundvallar þeirri ákvörðun. Tal um slíka hugmyndafræði kallar hann froðu.

Að yfirgefa vestræn gildi er stefnubreyting í utanríkismálum

Boðskapur af þessu tagi rímar vel við röksemdafærslu stjórnarandstöðuflokkanna. Hitt er er alvarlegra umhugsunarefni að í þessu felst grundvallar breyting á utanríkisstefnunni.

Við tölum gjarnan um vestræn gildi þegar við vísum til þessarar hugmyndafræði. Þau eru rækilega skrifuð inn í stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins. Af sjálfu leiðir að ekkert ríki á erindi í þessi samtök nema í þeim tilgangi að standa vörð um hugmyndafræði vestrænna gilda.

Bandaríkin hafa nú sett þessi gildi til hliðar um leið og þau beita hernaðarlegum og efnahagslegum yfirburðum sínum til þess að þvinga fram tollmúrastefnu í heimsviðskiptunum. Þar á meðal gegn Íslandi.

Það sem fyrrum forseti lýðveldisins og stjórnarandstöðuflokkarnir boða nú er að Ísland eigi fremur að halla sér þangað en að vestrænum gildum Evrópuþjóða um lýðræði og viðskiptafrelsi.

En skoðum nánar raundæmin sem víkja eiga áttatíu ára hugmyndafræðilegum grundvelli utanríkisstefnunnar til hliðar.

Fyrsta raundæmi

Fyrrum forseti segir að ekkert grannríki Íslands eigi aðild að Evrópusambandinu og tiltekur: Grænland, Færeyjar, Noreg og Bretland. Þess vegna eigi Ísland heldur ekki heima þar.

Athyglisvert er að hann nefnir ekki Írland þótt Dublin liggi nær Reykjavík en bæði Ósló og London.

Inn í þetta raundæmi vantar svo að Grænland og Færeyjar eru með gjaldmiðil sem er fast tengdur evru á grundvelli samkomulags Dana við Evrópusambandið. Í Færeyjum hefur þess vegna verið kraftmeiri hagvöxtur og betri stöðugleiki en á Íslandi.

Hér vantar líka inn í raundæmið að Bandaríkin bökkuðu með sérstakar tollaþvinganir til þess að brjóta niður sameiginlegt fullveldi Danmerkur og Grænlands vegna þess að Evrópusambandið sem heild hótaði að láta hart mæta hörðu.

Þá vantar inn í raunmyndina að efnahagslegur árangur Íslands og Noregs hefur í meir en þrjá áratugi byggst fyrst og fremst á aðild að regluverki Evrópusambandsins um innri markaðinn, sem er um þrír fjórðu hlutar af starfsemi þess.

Loks vantar inn í raundæmið að atvinnulífið bæði í Noregi og Bretland þrýstir nú stíft  á um að löndin fái aðild að tollabandalagi Evrópusambandsins. Í heimstollastríði sé of áhættusamt að standa utan þess.

Annað raundæmi

Ekkert Norðurlanda, nema Finnland, er með evru og evrutenging dönsku krónunnar er aukaatriði.

Hér vantar inn í raundæmið að mestur hagvöxtur í grannríkjum okkar hefur verið á Írlandi, sem notar evru. Eftir hrunið kom útflutningshagvöxtur fyrr fram á Írlandi með evru en á Íslandi með krónu.

Inn í raundæmið vantar líka að evru tenging dönsku krónunnar er ekki meira auka atriði en svo að áhlaup alþjóðlegra gjaldmiðlabraskara árið 2015 leiddi til þess að jafnvel svissneski frankinn lét undan en danska krónan stóð það af sér vegna tengingarinnar við evruna og gjaldmiðils samstarfsins við Evrópusambandið.

Þá vantar alfarið inn í raundæmið að allar útflutningsgreinar, sjávarútvegsfyrirtæki, stóriðjufyrirtæki og stærstu fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi lúta vaxtaákvörðunum í Frankfurt og Washington. Útflutningsfyrirtækin eru þannig óháð vaxtaákvörðunum í Reykjavík.

Samkeppnishæfni þessara fyrirtækja með 40 til 50% þjóðarframleiðslunnar liggur einmitt í þessu. Með reykvískum vöxtum væru þau eftirbátar í samkeppninni.

Þriðja raundæmi

Innan Evrópusambandsins er einna mestur hagvöxtur í Póllandi, sem ekki er með evru, og svo í Tékklandi.

Í þessu raundæmi þarf að hafa í huga að góður hagvöxtur í þessum tveimur löndum byggist nær alfarið á Evrópusambandsaðild þeirra. Nýjar rannsóknir sýna að þjóðarframleiðsla Póllands er nú 42% meiri en ella vegna aðildar að Evrópusambandinu.

Inn í raundæmið vantar svo að horft sé til þess að bæði ríkin þurfa nú sérstaka lánaaðstoð til uppbyggingar á sterkari vörnum af því að þau hafa ekki efni á að greiða innlenda vexti.

Enn fremur er í þessu raundæmi horft fram hjá því að 7% ríkissjóðshalla Póllands má að hluta rekja beint til miklu hærra vaxta en á evrusvæðinu. Þessa hlið raundæmisins þekkja íslenskir fjármálaráðherrar vel.

Fjórða raundæmi

Þrjú Evrópuríki, Ísland, Noregur og Sviss, skara fram úr án þess að vera í Evrópusambandinu og utan evrusvæðisins. Það sýnir að ekkert samhengi er milli evru og lífskjara.

Inn í þessa mynd vantar að Noregur og Ísland eru að þremur fjórðu hlutum aðilar að regluverki Evrópusambandsins í gegnum EES og Sviss í gegnum marga flókna sérsamninga.

Þá vantar inn í myndina að svissneski frankinn nýtur mikillar sérstöðu í heimsviðskiptum. Noregur er olíuríki. Og allar útflutningsgreinar á Íslandi þrífast í erlendu vaxtaumhverfi, mest í evrum. Í reykvísku vaxtaumhverfi gæti ríkissjóður jafnvel þurft að styrkja þessar greinar til að tryggja sömu samkeppnisstöðu.

Svo þarf ekki að fara lengra en til Írlands og Lúxemborgar til að finna sambærilegan hagvöxt á evrusvæðinu og í þessum tilgreindu ríkjum.

Fimmta raundæmi

Hrunið. Grikkland fékk ekki að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um að borga ekki ríkisskuldir. Ísland reis hraðast eftir hrun.

Inn í þetta raundæmi vantar að skuldavandi Grikkja var fyrst og fremst vegna ríkisskulda. Okkar vandi var gjaldeyriskreppa vegna skulda einkaaðila.

Engin þjóð hefur afskrifað eigin skuldir með þjóðaratkvæðagreiðslu. Það gerist bara með samningum. Þrotabú Landsbankans og tryggingasjóður innistæðueigenda greiddu alla Icesave-skuldina með vöxtum og áföllnum kostnaði. Þjóðarbúið losnaði ekki við eina krónu af þessum skuldum.

Evrópureglurnar voru varnarvirki Íslands. Á grundvelli þeirra vann Ísland Icesave málið fyrir EFTA-dómstólnum. Ef Bretar og Hollendingar hefðu ekki verið bundnir af þessum sameiginlegur reglum hefðu þeir getað beitt efnahagslegum yfirburðum í samskiptum við okkur eins og Bandaríkin gera í dag vítt og breitt og meðal annars gegn Íslandi. Þetta dæmi sýnir því glöggt það öryggi, sem felst í aðild Íslands að alþjóðlegu regluverki.

Skuldir ríkissjóðs Grikklands voru hlutfallslega helmingi hærri en skuldir ríkissjóðs Íslands. Samt greiddi Grikkland helmingi lægra hlutfall en Ísland í vexti af því að það var í evrunni.

Rétt raunmynd er líka sú að útflutningur tók hraðar við sér eftir hrun á Írlandi en á Íslandi. Nú sautján árum seinna er hagvöxtur í Grikklandi svo umtalsvert meiri en á Íslandi.

Í þessari raunmynd verður enn fremur að hafa hugfast að í hruninu urðum við að semja um aðstoð við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn með því að fórna í raun fullveldi okkar í ríkisfjármálum og peningamálum frá 2008 til 2011. Það var forsenda þess að við réttum úr kútnum.

Sjötta raundæmi

Evrópusambandið er ekki það sama nú og það var 2009 þegar við sóttum um aðild.

Inn í þessa raunmynd vantar bara þetta: Engar breytingar hafa verið gerðar á sáttmálum sambandsins á þessum tíma.

Sambandið hefur aftur á móti lagað sig að breyttum aðstæðum og nýjum viðfangsefnum. Án þess væri það staðnað og gæti ekki unnið að sömu markmiðum og áður. Einmitt af þessum sökum er full aðild eftirsóknarverð.

Sjöunda raundæmi

Öryggis og varnarmál léku ekkert hlutverk í umsókninni 2009 og ættu því ekki að gera það nú.

Inn í þetta raundæmi vantar að taka tillit til grundvallarbreytinga í þessum efnum.

Þannig eru fjölþáttaógnir nýtt raundæmi. Evrópusambandið hefur í samstarfi við NATO tekið forystu á því sviði. Utan við Evrópusambandið er Ísland því of berskjaldað gagnvart ógnum af þessu tagi. Varnarsamningurinn tekur ekki til þessara nýju ógna.

Að kröfu Bandaríkjanna eru Evrópuríki að auka varnarviðbúnað sinn bæði innan NATO og Evrópusambandsins. Augljóst er að Ísland dregst aftur úr á þessu sviði bregðist það ekki eins við með fullri þátttöku í báðum samtökunum.

Tvær grannþjóðir, Danir og Kanadamenn, hafa efnt til heræfinga vegna hættu á valdbeitingu af hálfu Bandaríkjanna. Þetta er nýtt raundæmi. Samstaða Evrópusambandsins með Dönum réði úrslitum um að Bandaríkin féllust á að fara samningaleiðina í stað efnahagslegrar valdbeitingar.

Fyrrum forseti segir þær viðræður ganga vel. Fyrr í vikunni var greint frá því að Bandaríkin vildu fá fullveldisyfirráð yfir afmörkuðum landsvæðum og að Grænland þyrfti að fá samþykki þeirra við öllum ákvörðunum í utanríkismálum. Það þýðir að Grænland yrði svipt möguleikanum á að verða fullvalda ríki.

Kannski endurspeglar ánægja fyrrum forseta með þessa stöðu í samningaviðræðunum hvers vegna hann vill ekki blanda hugmyndafræði um vestræn gildi, frelsi, lýðræði og frjáls viðskipti inn í ákvarðanir um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu og líkir slíkum málflutningi við froðu.

Fölsk raundæmi þjóna ekki íslenskum hagsmunum

Niðurstaðan er þessi:

Fyrrum forseti Íslands skoðar sjö raundæmi með því að hafa asklok fyrir himin. Þegar asklokinu er lyft og raundæmin skoðuð í heild virka þau sem sterkur rökstuðningur fyrir fullri Evrópusambandsaðild.

Enn fremur hefur ekkert það gerst sem réttlætir að kippa þeim megin stoðum undan utanríkisstefnunni sem felast í hugmyndafræði vestrænna gilda, sem snýst um lýðræði og frjáls viðskipti.

Hér eftir sem hingað til verðum við að byggja utanríkisstefnuna á skýrri hugmyndafræði og köldu mati á heildarhagsmunum þjóðarbúsins. Fölsk raundæmi þjóna ekki íslenskum hagsmunum.

#pálsson #raundæmi #sjö #skrifar #þorsteinn


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/5/21/thorsteinn-palsson-skrifar-sjo-raundaemi-um-sjo-raundaemi-fyrrum-forseta/

📰 Aðrar fréttir

„Skilgreinum öryggi ansi þröngt“
📅 07.10.2026 👁️ 0
„Skilgreinum öryggi ansi þröngt“
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, á frumkvæði að samtali laugardaginn 10. október til að ræða spurninguna: hvernig samfélag viljum við skapa saman? ...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að flugdólgur greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 0
Flugfreyja hjá Icelandair vill að flugdólgur greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Í ákæru segir að brotin hafi verið framin í flugi Ice...
Verða að viður­kenna barn getið með staðgöngumæðrun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Verða að viður­kenna barn getið með staðgöngumæðrun - Vísir
Þetta er niðurstaða dóms dómstólsins í dag, þar sem hann svaraði spurningum sem Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði til hans varðandi túlkun tilskipunar og...
Leita að ökumanni hlaupahjóls sem ók á gangandi vegfaranda
📅 07.10.2026 👁️ 0
Leita að ökumanni hlaupahjóls sem ók á gangandi vegfaranda
Lögreglan á Suðurnesjum leitar ökumanns sem ók á gangandi vegfaranda á rafhlaupahjóli fyrir utan Kjörbúðina við Hafnargötu Reykjanesbæ í morgun.Lögreg...
Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryk­sugu“ Rúv - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryk­sugu“ Rúv - Vísir
Tómas kvaðst hafa starfað á fjölmiðlum í tuttugu ár. Honum þætti erfitt að sætta sig við að fá ekki lengur sjónvarpsfréttir klukkan hálfsjö á kvöldin,...
Við­ræður VR við SA á leið inn „blind­götu“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Við­ræður VR við SA á leið inn „blind­götu“ - Vísir
Innan við sólarhringur er nú þar til frestur til þess að segja upp kjarasamningum VR, LÍV og fagfélaganna annars vegar og SA hins vegar rennur út. Fél...
Tíma­rit eigi hvergi stað og fái enga styrki - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Tíma­rit eigi hvergi stað og fái enga styrki - Vísir
Opnað var fyrir umsóknir til úthlutunarnefndar í ágúst og rann frestur til að sækja um út þann 1. september. Úthlutunarreglum var breytt í sumar en sí...
Segir fjölmiðla­nefnd stjórn­lausa og sektaóða - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Segir fjölmiðla­nefnd stjórn­lausa og sektaóða - Vísir
„Þetta er náttúrlega ríki í ríkinu,“ segir Þórarinn inntur eftir því hvað hafi farið fram á fundinum. Hann sátu ásamt ráðherra tveir sérfræðingar sem ...
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
📅 07.10.2026 👁️ 1
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
The sale of the High Street chain was announced on Wednesday.
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 p...
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
📅 07.10.2026 👁️ 1
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
Joey Swoll, einn þekktasti líkamsræktaráhrifavaldur heims, tilkynnti að hann hafi verið fluttur í skyndi á sjúkrahús á laugardagsmorgun vegna hjartava...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 1
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Samkvæmt frétt Vísis er ákærði íslenskur læknir á nír...
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður féla...
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot og var framseldur til Bretlands, var með dýraklám í símanum sínum. Hann tók einnig upp k...
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
Sverrir er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og situr á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Hann tók sæti sem varaþingmaður fyrir Víði Rey...
Gera þarf kennara að stórstjörnum
📅 07.10.2026 👁️ 1
Gera þarf kennara að stórstjörnum
Einn helsti sérfræðingur OECD í Pisa-prófunum telur að Íslendingar geti bætt sig verulega með því að sýna kennurum og menntun meiri virðingu. Hann seg...
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
Efnafræðingarnir Henri Kagan frá Frakklandi og Kenso Soai frá Japan fengu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að uppgötva aðferð til að aðskil...
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
EFTA-dómstóllinn komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld gætu hafa brotið gegn rétti barns með því að viðurkenna það ekki sem barn föðu...
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og...
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
Guðný var til viðtals í Bítinu en fyrr í vikunni var greint frá því að tilkynnt um kynferðisbrot til lögreglu á fyrri árshelmingi hafi ekki verið flei...
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.  Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi s...
Bein út­sending: Kennarar boða tíðindi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Bein út­sending: Kennarar boða tíðindi - Vísir
Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.  Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi s...
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
📅 07.10.2026 👁️ 1
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
The Met Police say a "spontaneous protest" was staged outside the office of the Board of Deputies.
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að...
France protests: Use of stun grenades suspended
📅 07.10.2026 👁️ 1
France protests: Use of stun grenades suspended
France has halted the use of stun grenades after a 15-year-old boys hand was blown off during student protests.
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
Árásin átti sér stað í Bellevuegården-hverfi í Malmö um klukkan tíu í morgun að sænskum tíma, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Kon...
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
📅 07.10.2026 👁️ 1
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
Robert Sabat is given a 17-year-minimum jail term for the fatal stabbing of his former partner.
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
📅 07.10.2026 👁️ 1
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
Sir Kevin Sinfield is knighted by the Prince of Wales at Windsor Castle.
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlab...
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
Leikarinn Michael Douglas lætur allt flakka í nýrri sjálfsævisögu, One Helluva Ride.Hann segir meðal annars frá upphafi sambands hans og eiginkonu sin...
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
📅 07.10.2026 👁️ 1
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi han...
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
Það getur tekið heilu kynslóðirnar að sníða vankantana af sameiningu sveitarfélaga og ágreiningsefnin geta verið afar fjölbreytt, segir Eva Marín Hlyn...
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum ób...
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
📅 07.10.2026 👁️ 1
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
Um 80 manns vinna við smíði Ölfusárbrúarinnar og er verkið töluvert á undan áætlun. Brúin verður um tvö þúsund tonn að þyngd.Það er allt á fullu við b...
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
Tékkneska ríkisútvarpið tilkynnti í dag að Tékkland verði ekki meðal þátttakenda í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, á næsta ári...
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuve...
Hefur áhyggjur af að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
📅 07.10.2026 👁️ 0
Hefur áhyggjur af að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuve...
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
📅 07.10.2026 👁️ 1
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
National Police officers have rescued a 24-year-old woman who was struggling to stay afloat in the sea off Playa de las Américas in South TenerifeThe ...
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
📅 07.10.2026 👁️ 1
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
Ný raflína sem tengja á Moldóvu við Rúmeníu verður nefnd eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta og mun bera nafnið „Trump Liberty Line“.Bandaríkin leggj...
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
„Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og auki...
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
📅 07.10.2026 👁️ 1
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn í Suðurnesjabær eiga í óformlegum samtölum um myndun nýs meirihluta. Meirihluti Samfylkingar og D-listans sprakk ...
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borg...
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 1
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
Temporary price caps on flights between the Canary Islands and mainland Spain are being considered to help residents facing soaring fares during Chris...
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hv...
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir fagnaði 26 ára afmæli sínu í Sykursalnum í Grósku.Hún hélt heljarinnar búningapartí og var klædd sem poppdí...
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
Heimildarmynd um hinstu för íslenska fjallgöngugarpsins Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til árið 2021 kom út á dögunum á streymisveitu A...
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
📅 07.10.2026 👁️ 2
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
Þau Örn Ólafsson, Ingibjörg Ólafsdóttir og Pjetur Hafstein Lárusson gera alvarlegar athugasemdir við nýja bók um Guðmund Elíasson myndhöggvara. Bókin ...
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
📅 07.10.2026 👁️ 2
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
Christa Pike, hinn dauðadæmdi fangi í Tennessee sem lifði af aftökutilraun í lok síðasta mánaðar, er vöknuð úr dái. Ekki eru allir á einu máli um hvað...