Þor­gerði hafa borist al­var­legar hótanir - Vísir

Þor­gerði hafa borist al­var­legar hótanir - Vísir

Þor­gerði hafa borist al­var­legar hótanir - Vísir

Þorgerður segist ekki fylgjast með því hvað fólk sé að segja um hana, hún reyni að sneiða hjá samfélagsmiðlum. Hún verði samt sem áður vör við ýmislegt og það sé ýmislegt sem hafi þurft að breytast í hennar lífi síðustu vikur.

Þorgerður var þá spurð hvort eitthvað væri öðruvísi en gat ekki svarað því en sagðist standa keik.

Spurð hvort hún væri hrædd eða hvort eitthvað væri að ógna henni svaraði hún

„Ef þú ert að tala um hótanir, já, ég hef fengið hótanir.“

Alvarlegar?

„Já, alveg alvarlegar, ég hef fengið þær en lögreglan sér um þetta og er með greiningar og gerir það sem þarf. Ég tel mig vera örugga og sérstaklega að berjast fyrir því sem ég brenn fyrir og það er að bæta enn frekar lífskjör hér á Íslandi og leysa úr læðingi tækifæri, alveg eins og leystust úr læðingi þegar EES-samningurinn var tekinn yfir. Ég óttast það ekki,“ segir hún og að lögreglan meti það sem er í gangi.

„Það er staðan,“ sagði hún og komst ekki lengra með það.

Með hnút í maganum

Þorgerður Katrín byrjaði þó viðtalið á því að senda samúðarkveðjur til Norðmanna vegna andláts Haralds Noregskonungs. Hún sagði hann yndislegan mann og það hafi verið dásamlegt að hitta hann á síðasta ári í heimsókn með Höllu Tómasdóttur forseta Íslands.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist vera keppnismanneskja og auðvitað sé hún með hnút í maganum yfir þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun.

Mikilvægt fyrir ungt fólk

„Þetta er komið crunch-time,“ segir hún og að þegar hún leggist á koddann sé hún ánægð með að hafa barist fyrir máli sem skipti almenning miklu máli.

„Venjulegt fólk sem þarf að baksa við verðtryggingu og vísitölu, sá veruleiki hverfur ekki ef við segjum nei, því tækifærin eru þarna til staðar,“ segir hún og að Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti hafi sagt það best: Krónan sé góð fyrir þá sem eiga en mjög slæm fyrir þá sem skulda.

„Ekki síst fyrir ungt fólk sem er að koma sér upp íbúð eða þaki yfir höfuðið þá er það þannig að við Íslendingar borgum meira og eignumst minna,“ segir hún.

Þorgerður Katrín svaraði þá Lilju Katrínu Gunnarsdóttur þáttastjórnanda sem spurði út í orð hennar, að ofan, um að þessi veruleiki hyrfi ekki segjum við nei. Þorgerður Katrín segir ríkisstjórnina með plan, fjárlögin eigi að verða hallalaus og að hún sé að gera allt til að styðja Seðlabankann í því að lækka vexti og spyrna við verðbólgu.

„En við sjáum það í gegnum áratugina, við erum búin að reyna allt við Íslendingar. Við erum búin að reyna fast gengi, fljótandi gengi,“ segir hún og að þó svo að hún vilji ekki segja að fyrrverandi fjármála- og forsætisráðherrar hafi endilega verið að standa sig þá sé innbyggt kerfi sem sé óréttlátt og það tengist íslensku krónunni.

Þorgerður Katrín segir að henni þyki til dæmis ekki sanngjarnt að 256 stærstu fyrirtækin séu fyrir utan krónuhagkerfið og þurfi ekki að upplifa sveiflurnar sem almenningur mætir á hverjum degi.

700 milljarða innviðaskuld

Hún segir reynsluna sýna að hjá þeim ríkjum sem ganga í Evrópusambandið hafi efnahagsmálin orðið stöðugri og fyrirsjáanlegri og vextir og verðbólga hafi lækkað, og matarkarfan, sem sé ein stærsta breyta hvers heimilis, lækki um 25 til 30 prósent, alveg eins og hún gerði.

„Bæði vegna tolla og vegna hagræðingar,“ segir Þorgerður Katrín.

Spurð hvað sé því til fyrirstöðu að fella niður þessa tolla nefnir hún íslenskan landbúnað. Hún segir Evrópusambandið samanstanda af vinaþjóðum okkar sem séu mjög hugsi eins og við um landbúnað og fæðuöryggi. Þau hugsi ekki bara um að styrkja bóndann, þó að þau geri það vel, þau yrki jörðina en þau hugsi líka um umhverfið í kringum hana í heild.

Þorgerður Katrín segir 700 milljarða innviðaskuld af því að stjórnmálamenn nútímans og fyrri tíma hafi ákveðið að greiða 100 milljarða árlega í vexti. Það sé hægt að setja það frekar í göng og heilbrigðiskerfið. Auk þess kosti krónan okkar um hundrað milljarða vegna hennar.

Þorgerður Katrín segir ríkisstjórnina hafa talað um þetta reglulega og spyr á móti hvort það sé tilviljun að þeir sem eiga krónu séu að setja 100 milljónir í nei-aðferðina.

„Við erum alls ekki að gefa frá okkur fullveldið,“ segir hún spurð um hræðslu fólks um það og bendir á ríki eins og Danmörku, Þýskaland og Svíþjóð. Hún segir Finna til dæmis segja að Evrópusambandið sé það besta sem hafi komið fyrir þeirra landbúnað og það hafi komið fram nýlega á Landbúnaðarþingi. Þorgerður Katrín segir Finna hafa naumlega samþykkt að ganga í sambandið en í dag séu um 90 prósent landsmanna hlynntir veru þeirra þar.

„Og finnskir bændur allra síst.“

„Við munum alltaf vera fullvalda, sjálfstæð þjóð og mér finnst miklu frekar þannig að við eigum að nýta sjálfstæði okkar og fullveldi með því að setjast við borðið en ekki láta vísa okkur til sætis í einhverjum hliðarsal, eins og gert er núna.“

Risastórt lífskjaramál

Hvað varðar atvinnuleysi og að laun geti lækkað við inngöngu segir Þorgerður Katrín þetta dæmi um hræðsluáróður og bendir á Danmörku og Lúxemborg sem dæmi um þjóðir þar sem atvinnuleysi er minna, svo sé það meira annars staðar. Það séu 27 ríki og hver þjóð stýri sínum vinnumarkaði sjálf og lífeyrissjóðum.

„Þjóðaratkvæðagreiðslan á morgun er risastórt lífskjaraspursmál,“ segir Þorgerður og að það gildi fyrir bæði heimilin og fyrirtækin.

Þorgerður segir hana líka skipta máli fyrir stöðu Íslands alþjóðlega í breyttum heimi og nefnir erfiða stöðu Kanada, Grænlandsmálið, Noregur sé að stefna á meira tollasamstarf og þar sé mikil umræða um að taka fleiri skref í átt að Evrópusambandinu. Þess vegna sé gott fyrir Ísland að fara núna, áður en það gerist, og áður en Bretar mögulega reyna að breyta sínu samstarfi, tíu árum eftir Brexit.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, talað í viðtali fyrr í morgun um að það væri of mikið farið í manninn í þessari baráttu. Spurð um það sem fólk segir við hana segist hún fyrst vilja árétta að atkvæðagreiðslan á morgun snúist ekki um inngöngu eins og Guðlaugur hafi sagt og segist ekki skilja af hverju fólk sé að berjast gegn því að farið sé í samningaviðræður. Atkvæðagreiðslan snúist um að halda viðræðum áfram.

„Það eru hagsmunir þjóðarinnar að sjá samning,“ segir hún og að Evrópusambandið sé til dæmis í forystu í baráttunni gegn fjölþátta ógnum. Í lok júlí hafi verið gerð árás á veitufyrirtæki á Íslandi frá Rússum og Írönum. Hún vilji því undirstrika að atkvæðagreiðslan snúist um að fara í samningaviðræður að nýju.

#alvarlegar #borist #hafa #hótanir #þorgerði


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262927179d/thorgerdi-hafa-borist-alvarlegar-hotanir

📰 Aðrar fréttir

Lögreglan rannsakar alvarlegar hótanir í garð Þorgerðar Katrínar - „Ýmislegt sem hefur þurft að breytast í mínu lífi“
📅 28.08.2026 👁️ 0
Lögreglan rannsakar alvarlegar hótanir í garð Þorgerðar Katrínar - „Ýmislegt sem hefur þurft að breytast í mínu lífi“
Lögreglan rannsakar alvarlegar hótanir í garð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Þetta kom fram í viðtali við ráðherrann í Bítinu á B...
Furða sig á slakri sögukunnáttu Guðrúnar - Sagði Íslendinga hafa barist mest allra norrænna þjóða fyrir sjálfstæðinu
📅 28.08.2026 👁️ 0
Furða sig á slakri sögukunnáttu Guðrúnar - Sagði Íslendinga hafa barist mest allra norrænna þjóða fyrir sjálfstæðinu
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins hefur hlotið nokkra gagnrýni fyrir að halda því ranglega fram að Íslendingar hafi þurft í sögu si...
Þorgerður segir alvarlegar hótanir í sinn garð á borði lögreglu
📅 28.08.2026 👁️ 0
Þorgerður segir alvarlegar hótanir í sinn garð á borði lögreglu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir ýmislegt hafa þurft að breytast í sínu lífi síðustu vikur. Hún segir sér hafa borist alvarlegar...
„Já“ þarf mörgum sinnum en „nei“ bara einu sinni
📅 28.08.2026 👁️ 1
„Já“ þarf mörgum sinnum en „nei“ bara einu sinni
„Já“ þarf mörgum sinnum en „nei“ bara einu sinni Ef „nei“ verð­ur nið­ur­stað­an á laug­ar­dag leggst Evr­ópu­um­ræð­an í dvala en skýt­ur upp koll­in...
Þor­gerður beygði af í Bítinu - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 0
Þor­gerður beygði af í Bítinu - Vísir
Þorgerður segist ekki fylgjast með því hvað fólk sé að segja um hana, hún reyni að sneiða hjá samfélagsmiðlum. Hún verði samt sem áður vör við ýmisleg...
Hvaða áhrif hefði aðild að ESB á dómsvald á Íslandi?
📅 28.08.2026 👁️ 0
Hvaða áhrif hefði aðild að ESB á dómsvald á Íslandi?
Þjóðin gengur að kjörborðinu á morgun og greiðir atkvæði um hvort aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar að nýju. Fréttastofa óskaði nýverið...
Watch: Nepal army rescues survivors from hydropower tunnel
📅 28.08.2026 👁️ 0
Watch: Nepal army rescues survivors from hydropower tunnel
Nepal's Prime Minister Secretariat shared footage showing army personnel rescuing people from a hydropower tunnel.
Skýjað að mestu og hæg norð­læg eða breyti­leg átt - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 0
Skýjað að mestu og hæg norð­læg eða breyti­leg átt - Vísir
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að það sé fremur svalt loft yfir landinu, svo hæsti hitinn í dag verði væntanlega einungis 13 til...
Hreyfingarnar funduðu á lokametrunum
📅 28.08.2026 👁️ 1
Hreyfingarnar funduðu á lokametrunum
Fjölmenni kom saman á útifundi Áfram Ísland á Austurvelli. Margir tóku til máls og þar á meðal Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra.Fundu...
Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption - Vísir
GTA6 hefur verið í framleiðslu í meira en áratug en síðasti leikurinn í seríunni vinsælu kom út árið 2013. Beðið er eftir leiknum af mikilli eftirvænt...
Segir Katrínu sparka í konuna sína - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Segir Katrínu sparka í konuna sína - Vísir
Fyrrverandi lykilfólk í Vinstri hreyfingunni - grænu framboði á borð við Katrínu, Steingrím J. Sigfússon, Ögmund Jónasson og Svandísi Svavarsdóttur er...
Fékk loksins svarið frá Bubba sem hann hafði beðið eftir - Afleiðingarnar voru þó óvæntar
📅 28.08.2026 👁️ 1
Fékk loksins svarið frá Bubba sem hann hafði beðið eftir - Afleiðingarnar voru þó óvæntar
Birgir Örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi í Maus, veltir því fyrir sér hvort íslenskt tónlistarlíf hafi pláss fyrir fimmtuga rokkara í dag. Hann...
Afmælispartý Bylgjunnar í beinni - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Afmælispartý Bylgjunnar í beinni - Vísir
Bítið byrjaði afmælisveisluna í morgun og klukkan 9 verður svo sannkölluð endurkoma þegar Tveir með öllu snúa aftur í loftið. Þar verða Jón Axel og Gu...
Ungir vinstri­menn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjall­konuna á nokkurn hátt“ - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Ungir vinstri­menn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjall­konuna á nokkurn hátt“ - Vísir
Hinn 24 ára Kjartan Sveinn Guðmundsson er í Ungum vinstri grænum og hefur látið fyrir sér fara í hreyfingunni Ung gegn ESB-aðild.  Hinn 23 ára Ármann ...
Haraldur Noregskonungur látinn
📅 28.08.2026 👁️ 1
Haraldur Noregskonungur látinn
Haraldur fimmti Noregskonungur er látinn, 89 ára að aldri. Hann lést klukkan 4:35 í morgun að íslenskum tíma (6.35 að norskum tíma). Greint er frá þes...
Sjálfsmark hjá Hvíta húsinu – Birtu mynd af skallaerni ráðast á Kanadagæs en gæsin vann rimmuna
📅 28.08.2026 👁️ 1
Sjálfsmark hjá Hvíta húsinu – Birtu mynd af skallaerni ráðast á Kanadagæs en gæsin vann rimmuna
Bandaríkjastjórn herjar nú á Kanada með tollastríði og Kanadamenn verja sig með að svara í sömu mynt. Ljósmynd sem Hvíta húsið birti á samfélagsmiðlum...
Er sagður hafa lagt spilinn á borðið varðandi Úkraínu - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Er sagður hafa lagt spilinn á borðið varðandi Úkraínu - Vísir
Miðillinn segir Ratcliffe hafa fundað með Aleksandr V. Bortnikov, yfirmanni leyniþjónustunnar FSB. Fundurinn hafi miðað að því að upplýsa Rússa um mat...
Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 0
Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu - Vísir
Miðillinn segir Ratcliffe hafa fundað með Aleksandr V. Bortnikov, yfirmanni leyniþjónustunnar FSB. Fundurinn hafi miðað að því að upplýsa Rússa um mat...
Áfram Ísland – Fjölmenni á Austurvelli
📅 28.08.2026 👁️ 1
Áfram Ísland – Fjölmenni á Austurvelli
Fjölmenni var á samkomu samtakanna Áfram Ísland á Austurvelli á fimmtudag, tveimur dögum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald aðildarviðræðna við...
Haraldur er látinn - Hákon er orðinn konungur
📅 28.08.2026 👁️ 1
Haraldur er látinn - Hákon er orðinn konungur
Nýr konungur tók við í Noregi í morgun þegar Haraldur féll frá. Hákon varð konungur um leið og faðir hans andaðist. Hann er fjórði konungur landsins f...
„Upptaka evrunnar væri upphaf endalokanna“ – Hagfræðiprófessorinn Richard Werner varar Íslendinga við því að afsala sér krónunni og gagnrýnir vaxtastefnu Seðlabankans
📅 28.08.2026 👁️ 1
„Upptaka evrunnar væri upphaf endalokanna“ – Hagfræðiprófessorinn Richard Werner varar Íslendinga við því að afsala sér krónunni og gagnrýnir vaxtastefnu Seðlabankans
„Upptaka evrunnar væri upphaf endalokanna. Þetta er versta efnahagsákvörðun sem nokkurt ríki gæti tekið,“ segir þýski hagfræðiprófessorinn Richard Wer...
Hlé á björgunaraðgerðum vegna flóðahættu
📅 28.08.2026 👁️ 1
Hlé á björgunaraðgerðum vegna flóðahættu
Björgunarfólki og almenningi hefur verið sagt að fara í öruggt skjól í Nepal vegna flóðahættu. Nepalski herinn segir að búið sé að bjarga 900 á þeim s...
Hægur vindur og skýjað víðast hvar
📅 28.08.2026 👁️ 1
Hægur vindur og skýjað víðast hvar
Útlit er fyrir hægan vind í dag og á morgun. Skýjað verður um mestallt land og dálitlar skúrir á víð og dreif. Bjartara verður yfir suðvestanverðu lan...
Hníf­jafnt á laugar­dag eða meiri munur en allir búast við? - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Hníf­jafnt á laugar­dag eða meiri munur en allir búast við? - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kom í Pallborðinu á Vísi í gær. Stjórnmálafræðingurinn Eiríkur Bergmann og stjórnmálasálfræðingurinn Hulda Þórisdóttir vo...
Hvað kýs fræga fólkið? - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Hvað kýs fræga fólkið? - Vísir
Þó nokkuð margir hafa gefið upp afstöðu sína til þjóðaratkvæðagreiðslunnar, ýmist með skrifum, þátttöku í hinum ýmsu samtökum eða hegðun á samfélagsmi...
Nína Richter skrifar: Allir eru ógeðslega massaðir í Brussel
📅 28.08.2026 👁️ 1
Nína Richter skrifar: Allir eru ógeðslega massaðir í Brussel
Mynd Það eru nokkrar vikur síðan ég byrjaði að lyfta aftur.
Slorævintýri á Nýbýlaveginum: „Við sprengjum allt utan af okkur“
📅 28.08.2026 👁️ 1
Slorævintýri á Nýbýlaveginum: „Við sprengjum allt utan af okkur“
Á Nýbýlaveginum í Kópavogi er matvöruverslunin Fiska þar sem yfirleitt er örtröð síðdegis og um helgar. Verslunin selur ýmsa matvöru frá öllum heimsho...
27-year-old woman in serious condition after scuba diving accident in Lanzarote
📅 28.08.2026 👁️ 1
27-year-old woman in serious condition after scuba diving accident in Lanzarote
A 27-year-old woman has been hospitalised in a serious condition following a scuba diving accident in Playa Blanca, Lanzarote, according to reports fr...
Tekinn á rúmlega tvöföldum hámarkshraða
📅 28.08.2026 👁️ 1
Tekinn á rúmlega tvöföldum hámarkshraða
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjá ökumenn á yfir 100 kílómetra hraða á kvöld- og næturvaktinni. Sá sem fór hraðast mældist á 148 kílómetra ...
Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum - Vísir
Haraldur V Noregskonungur er látinn, 89 ára að aldri. NRK greindi frá því í morgun að hann hefði látist klukkan 06:35 að staðartíma, eftir níu daga le...
Families fly to Nepal in search for 33 missing British nationals
📅 28.08.2026 👁️ 1
Families fly to Nepal in search for 33 missing British nationals
Among the British nationals reported missing are a 13-year-old girl and 14-year-old boy.
Haraldur Noregskonungur er látinn
📅 28.08.2026 👁️ 1
Haraldur Noregskonungur er látinn
Haraldur V. Noregskonungur er látinn á nítugasta aldursári eftir stutta sjúkdómslegu. Heilsu konungs hafði farið nokkuð hrakandi síðustu misseri og ár...
Norway's King Harald dies aged 89
📅 28.08.2026 👁️ 1
Norway's King Harald dies aged 89
The late king, who reigned for 35 years, broke with tradition by marrying a commoner and was widely loved by Norwegians.
Haraldur V Noregs­konungur er látinn - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Haraldur V Noregs­konungur er látinn - Vísir
Greint er frá því að konungur hafi látist klukkan 06:35 að staðartíma í morgun, eða klukkan 4:35 að íslenskum tíma. Konungurinn hafði legið á Ríkissjú...
7 ways travellers stay entertained on their Canary Islands adventures
📅 28.08.2026 👁️ 1
7 ways travellers stay entertained on their Canary Islands adventures
The Canary Islands offer plenty of attractions, from volcanic scenery and Atlantic coastlines to charming towns and natural landscapes, however, trave...
DGT confirms changes to traffic lights from October - here’s what drivers need to know
📅 28.08.2026 👁️ 1
DGT confirms changes to traffic lights from October - here’s what drivers need to know
Drivers in the Canary Islands and across Spain will see a change to traffic light sequences from 1st October 2026, following an amendment to Spain's G...
„Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
„Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ - Vísir
„Þetta er auðvitað ekkert venjulegt mál,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, að loknum samstöðufundi í gær.  „Ég hef ákv...
More than 300 people ordered to leave ‘shanty town’ in Costa Adeje within 15 days
📅 28.08.2026 👁️ 1
More than 300 people ordered to leave ‘shanty town’ in Costa Adeje within 15 days
Adeje Council has ordered more than 300 people living illegally in makeshift homes, shacks, and caravans in El Puertito de Adeje in the south of Tener...
E-bike and e-scooter battery fires cause of 18 deaths and nearly 700 injuries
📅 28.08.2026 👁️ 1
E-bike and e-scooter battery fires cause of 18 deaths and nearly 700 injuries
Fatalities included people who inhaled toxic fumes from fires or became trapped inside burning homes.
18 deaths from battery fires show hidden danger of UK's e-bike boom
📅 28.08.2026 👁️ 1
18 deaths from battery fires show hidden danger of UK's e-bike boom
Fatalities included people who inhaled toxic fumes from fires or became trapped inside burning homes.
Serial rapist police officer passed vetting despite warnings
📅 28.08.2026 👁️ 1
Serial rapist police officer passed vetting despite warnings
Alan Greer was investigated by police in 2002 and 2005 for making inappropriate phone calls to women, with one case resulting in a formal police cauti...
Breytir Ontario-vatni í Ameríkuvatn
📅 28.08.2026 👁️ 1
Breytir Ontario-vatni í Ameríkuvatn
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út forsetatilskipun um að Ontario-vatn verði endurskírt og verði framvegis kallað Ameríkuvatn. Hann undirri...
Trump administration illegally retaliated against Anthropic, judge says
📅 28.08.2026 👁️ 1
Trump administration illegally retaliated against Anthropic, judge says
The AI startup has been at loggerheads with the Pentagon over the use of AI by the US military.
Rekin vegna umfjöllunar um aðstæður bandarískra hermanna á Abraham Lincoln
📅 28.08.2026 👁️ 1
Rekin vegna umfjöllunar um aðstæður bandarískra hermanna á Abraham Lincoln
Þrír fjölmiðlamenn á Stars and Stripes, fjölmiðil bandaríska hersins, ætla að fara í mál við bandaríska varnarmálaráðuneytið vegna uppsagna á fjölmiðl...
Rekin vegna umfjöllunar um aðstæður bandarískra hermanna í Abraham Lincoln
📅 28.08.2026 👁️ 0
Rekin vegna umfjöllunar um aðstæður bandarískra hermanna í Abraham Lincoln
Þrír fjölmiðlamenn á Stars and Stripes, fjölmiðil bandaríska hersins, ætla í mál við bandaríska varnarmálaráðuneytið vegna uppsagna á fjölmiðlinum.Rit...
UK weather: thunderstorms and rain forecast for bank holiday weekend
📅 28.08.2026 👁️ 1
UK weather: thunderstorms and rain forecast for bank holiday weekend
The weather will remain unsettled across the next few days with showers, longer spells of rain and thunderstorms all likely at times across the weeken...
NHS bosses warn of chaos in ADHD and autism care
📅 28.08.2026 👁️ 1
NHS bosses warn of chaos in ADHD and autism care
Costs are spiralling out of control as unregulated private providers capitalise on demand, say managers.
Biðla til íbúa Kherson um að yfirgefa borgina
📅 28.08.2026 👁️ 1
Biðla til íbúa Kherson um að yfirgefa borgina
Yfirvöld í borginni Kherson í Úkraínu hafa beðið íbúa að yfirgefa borgina. Héraðsstjórinn Oleksandr Prokudin sagði í færslu á Telegram að hann biðlaði...
Biðja íbúa Kherson um að yfirgefa borgina
📅 28.08.2026 👁️ 1
Biðja íbúa Kherson um að yfirgefa borgina
Yfirvöld í borginni Kherson í Úkraínu hafa beðið íbúa að yfirgefa borgina. Héraðsstjórinn Oleksandr Prokudin hvatti alla íbúa um að yfirgefa borgina, ...
Upp­sagnirnar hafi líka á­hrif á þá sem eftir verða - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Upp­sagnirnar hafi líka á­hrif á þá sem eftir verða - Vísir
Tæplega níutíu starfsmönnum var sagt upp hjá Reykjavíkurborg í vikunni vegna skipulagsbreytinga. Uppsagnirnar náðu til velferðar-, frístunda- og skóla...