Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingarinnar í Hafnarfirði hefur ákveðið að ráða Þórð Þórarinsson í embætti bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Þetta kemur fram í tilkynningu meirihlutans.
Hann er fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og fyrir það var hann framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins.
Þórður er ekki búsettur í Hafnarfirði. Hann og eiginkona hans, Marta María Ástbjörnsdóttir, búa í Vesturbæ Reykjavíkur.
Flokkarnir sem mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar kynntu í dag nýjan málefnasáttmála. Sáttmálinn og meirihlutasamstarfið verða kynnt nánar á blaðamannafundi í leikskólanum Áshamri í Hamraneshverfi í Hafnarfirði í dag.
Fréttin hefur verið uppfærð.