Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur tímabundið skipað Þórörnu Gró í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) frá og með 1. júní næstkomandi þegar Guðjón Hauksson lætur af embættinu og tekur við starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.
Þórarna er með BS-gráðu í sálfræði og MS-gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað hjá HSA sl. átta ár, fyrst sem rekstrarstjóri á Egilsstöðum og Vopnafirði en síðustu fjögur ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri mannauðs hjá HSA.
Embætti forstjóra HSA verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að nýr forstjóri stofnunarinnar verði skipaður 1. september næstkomandi og er Þórarna skipuð til þess tíma.