Óskað hefur verið eftir því að þingmönnum sem ekki eiga sæti í utanríkismálanefnd Alþingis verði á morgun veittur aðgangur að trúnaðargögnum sem nefndinni hafa borist í sambandi við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Þetta kom fram í erindi sem Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sendi þinginu rétt fyrir miðnætti og lesið var upp af þingforseta.
Forseti geti veitt aðgengi
Samkvæmt erindinu getur forseti Alþingis ákveðið, ef sérstakar ástæður mæla með því og eftir því er leitað, að aðgangur verði veittur þegar fyrir liggja trúnaðarupplýsingar í máli sem nefnd hefur haft til athugunar, enda sé þá ljóst að málið muni koma til atkvæðagreiðslu á þingfundi.
Þingfundur stendur enn yfir og boðað hefur verið til annars þingfundar á morgun. Þingmenn Miðflokksins eru einir á mælendaskrá.