Þingmaðurinn sem bjó í blokk og varð ESB-sinni

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Þingmaður segist hafa alist upp með systur sinni hjá einstæðri móður í blokk. Reynslan markaði þáttaskil í lífi þingmannsins sem 17 ára gerðist ESB-sinni. Nú býr móðir þingmannsins í parhúsi og hefur rúmt um sig. Þingmaðurinn sjálfur upplýsir ekki hvort hann búi í blokk en getur þess að hann óttist að það verði hlutskipti tveggja barna sinna á grunnskólaaldri. Til að komast þeim örlögum að búa í fjölbýli sér þingmaðurinn þá einu leið að Ísland gangi í Evrópusambandið.
Þingmaðurinn heitir Dagbjört Hákonardóttir og situr á alþingi fyrir Samfylkinguna. Dagbjört á sæti i utanríkismálanefnd, vélar þar með fjöregg þjóðarinnar, sjálfstæði og forræði eigin mála.
Dagbjört skrifar skoðanagrein í Vísi um ESB-sannfæringu sína, mótunarár í fjölbýli með stigagangi og áhyggjur af húsnæðisvanda barna sinna sem enn eru í grunnskóla. Í síðustu viku játaði Dagbjört yfirgripsmikla vanþekkingu á stofnanakerfi ESB annars vegar og hins vegar Íslands:
Ég verð að viðurkenna vanþekkingu mína á Evrópusambandinu sem hér er að verða bara æpandi greinilega.
Dagbjört telur sig greinilega sterkari á svellinu í húsnæðismálum en málefnum stjórnsýslunnar. Hún ólst jú upp í blokk.
Í greininni í Vísi segir Dagbjört að forsenda fyrir varanlegri lausn á húsnæðisöryggi barna sinna og óborinni kynslóða sé innganga í Evrópusambandið og upptaka evru sem gjaldmiðils hér á landi. Með húsnæðisöryggi á Dagbjört við að eiga sitt eigið húsnæði.
Samkvæmt tölum frá Húsnæðisstofnun búa 73 prósent íslensku þjóðarinnar í eigin húsnæði.
Í Evrópusambandinu eru færri herrar í eigin húsi en á Íslandi. Hagstofu ESB, Eurostat, segir 68 prósent íbúa ESB búa í eigin húsnæði. Munurinn er fimm prósentustig, Íslandi í vil.
Um helmingur íbúa ESB (48%) býr í blokk. Hlutfallið á Íslandi er nálægt 40 prósent.
Niðurstaðan er ótvíræð. Vilja Dagbjört og ESB-sinnar að Íslendingar eignist húsnæði og búi síður í blokk en einbýli ætti Ísland að standa utan Evrópusambandsins.
Mun Dagbjört endurskoða afstöðu sína til ESB-aðildar Íslands í ljósi þess að húsnæðisöryggi hér á landi er meira en í Evrópusambandinu? Nei, það er harla ólíklegt. Fyrir Dagbjörtu og marga ESB-sinna, kannski þorra þeirra, er ESB-aðild ekki byggð á raunsæju mati og yfirvegun á málefnum. ESB-Ísland er trúarkredda sem á fátt skylt með aðstæðum í raunheimi.