Boðað hefur verið til þingfundar á morgun í stað nefndardags sem átti að fara fram. Þar verður að öllum líkindum haldið áfram að ræða um atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þingmenn Miðflokksins eru einir eftir á mælendaskrá.
„Já, það hefur verið boðar til þingfundar á morgun í samræmi við það sem ég hef alltaf bent á; ef mönnum liggur svo á að hafa þessa atkvæðagreiðslu í ágúst þá er síðasti séns til þess að greiða atkvæði um það hér á þinginu á morgun og til þess þarf auðvitað þingfund, en ekki nefndarfund,“ segir Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, í samtali við mbl.is.
Innihaldsríkar ræður
Hún segir kvöldið á þinginu hafa gengið vel en þar hafa þingmenn Miðflokksins stigið í pontu hver á fætur öðrum og rætt fyrirhugaða atkvæðagreiðslu.
„Þetta hefur verið mjög fínt kvöld og fullt af frábærum ræðum sem hafa verið innihaldsríkar að efni til,“ segir hún og bætir við að umhugsunarvert sé fyrir aðra þingmenn að Miðflokksmenn séu þeir einu sem eftir eru á mælendaskrá.
Aðspurð segir hún markmið ræðanna ekki vera að draga umræðuna fram yfir 29. maí, en það myndi þýða að atkvæðagreiðslan gæti ekki farið fram þann 29. ágúst eins og til stendur.
„Það er ekkert markmið annað en að koma á framfæri upplýsingum og athugasemdum sem við teljum að eigi erindi við þjóðina fyrir þessa atkvæðagreiðslu.“
Ber ekkert á öðrum þingmönnum
Þá segir hún lítið sem ekkert bera á þingmönnum meirihlutans í Alþingishúsinu við Austurvöll þessa daga.
„Þingmenn stjórnarflokkanna hafa náttúrulega ekkert sést hérna í húsi í marga daga þannig að við höfum ekkert orðið vör við aðra þingmenn hér í húsi, sem er bara ágætt frá okkar sjónarhorni,“ segir hún.