„Þetta er dæmi um vel heppnað verkefni bæði hjá fiskeldisfyrirtækinu Háafelli, ásamt Bláma og Orkubúi Vestfjarða,“ segir Jón Páll Hreinsson, nýviðtekinn framkvæmdastjóri Bláma, um verkefni sem félagið tók þátt í við að landtengja fiskeldispramma á Vestfjörðum. „Fram undan eru svo fleiri hliðstæð verkefni með fiskeldisfyrirtækjum á Vestfjörðum og Austfjörðum þar sem hver tenging mun spara hundruð þúsunda lítra af olíu á hverju ári.“
„Í flestum tilfellum eru prammarnir keyrðir áfram á jarðefnaeldsneyti.“ Í samstarfi við fiskeldisfyrirtækið Háafell fór Blámi í það verkefni að gera fyrsta landtengda prammann sem gengur alfarið fyrir rafmagni. „Þetta sparar þúsundir lítra af olíu á hverju ári.“
„Blámi, líkt og Eimur og Orkídea, er hugarfóstur Landsvirkjunar og Vestfjarðastofa og Orkubú Vestfjarða eru svo eigendur. Okkar markmið er fyrst og fremst að stuðla að orkuskiptum á sjó, eins og nafnið gefur til kynna,“ segir Jón Páll Hreinsson, nýviðtekinn framkvæmdastjóri Bláma. Félagið, sem leggur sérstaka áherslu á að efla samstarf og samvinnu við sveitarfélög og eigendur sína, hefur náð góðum árangri í orkuskiptaverkefnum.
Jón Páll finnur fyrir vaxandi orkuáhuga á Vestfjörðum og segist bjartsýnn á framtíð orkumála. „Við erum ótrúlega þakklát fyrir þau tækifæri sem við höfum fengið til þess að vinna með bæði stjórnvöldum og atvinnulífinu almennt að því að efla orkuöflun og hvernig við nýtum hana hérna á Vestfjörðum,“ bætir hann við.
„Hér á Vestfjörðum er mjög frjór jarðvegur fyrir nýsköpun á sviði orku. Nýsköpun krefst eldhuga, frumkvöðla og fjármagns. Það er ekki alltaf sem þetta kemur saman á sama tíma en Blámi ýtir undir að svo gerist.“
Jón Páll segir mikinn uppgang vera á Vestfjörðum í sambandi við nýsköpunarfyrirtæki, fjármagn og það frjóa umhverfi sem þar umlykur: „Ég hef mikla trú á því að við stöndum á tímamótum hér á Vestfjörðum.“