Ótímabært var að afgreiða þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðildarviðræður úr utanríkismálanefnd, að mati Diljár Mistar Einarsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokks sem á sæti í nefndinni.
Hún segir að beiðnum um gögn og upplýsingar hafi verið svarað bæði seint og illa og nefndarmenn hafi engar forsendur til að afgreiða málið fyrr en meiri upplýsingar liggi fyrir.
Utanríkismálanefnd kom saman á stuttum fundi í morgun og þar var mál 516 - þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu afgreidd út úr nefndinni til annarar umræðu á Alþingi. Að henni lokinni fer málið í atkvæðagreiðslu.
Segir meirihlutann í spreng
„Minnihlutinn mótmælti því harðlega,“ segir Diljá Mist um afgreiðsluna. „Við erum enn með útistandandi upplýsingabeiðnir. Upplýsingabeiðnum hefur ekki verið svarað, okkur hafa verið að berast upplýsingar síðustu daga, síðast í gærkvöld. En það var ekki hægt að koma neinu viti fyrir meirihluta nefndarinnar sem vísaði til þess að það hefði verið lögð fram tímalína. Þegar við hófum þessa vinnu í mars var lagt fram tímaplan, sem ég taldi að væri til viðmiðunar. Og tímaplanið er auðvitað að þau eru í spreng að klára þetta mál og afgreiða út úr þingsal fyrir 29. maí svo það sé hægt að drífa í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst,“ segir Diljá Mist.
Hún segir þessa málsmeðferð hafa litað mjög vinnu nefndarinnar. „Það er ofboðsleg tímapressa og það hefur ekki gefist tími til að ræða um neitt. Þetta snýst bara um að stimpla málið eins og það kemur frá utanríkisráðherra, ekki að vinna málið vel og vandlega í nefndinni.“
Nefndarformaður neitar að hafa neitað gagnabeiðnum
Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, segir í samtali við fréttastofu að minnihlutanum hafi einu sinni verið neitað um gögn.
„Það eina sem hefur verið sagt nei við er ósk minnihlutans um að það verði leitað eftir gögnum frá Evrópusambandinu sjálfu og það myndi ég halda að væri verulega óhefðbundið og hefur aldrei áður verið gert í tvíhliða ríkja samtali - að það sé óskað eftir vinnugögnum mótaðilans. Þeirri beiðni var hafnað, en orðið við öllum öðrum beiðnum sem voru lagðar fram á grundvelli þingskapa. “
Segir að fátt annað muni komast að
Næsti þingfundur er á dagskrá á miðvikudaginn 20. maí og þá eru níu dagar til stefnu - eigi að takast að greiða atkvæði um málið þremur mánuðum fyrir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Diljá Mist segist búast við að þingstörf verði undirlögð af umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna.
„Þegar það er svona mikil harka hjá meirihlutanum í nefndastarfinu og ekki tekið tillit til beiðna og óska minnihlutans, þá færist umræðan oft í þingsal og lengist. Það mun auðvitað fátt annað komast að.“